Formúla 1

Valtteri Bottas áfram hjá Mercedes

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Valtteri Bottas er sáttur við nýjan samning við Mercedes.
Valtteri Bottas er sáttur við nýjan samning við Mercedes. Vísir/Getty
Valtteri Bottas, ökumaður Mercedes liðsins hefur framlengt við liðið út næsta tímabil.

Bottas var fenginn til Mercedes frá Williams fyrir yfirstandandi tímabil. Hann fékk tækifærið með heimsmeisturum í keppni bílasmiða eftir að Nico Rosberg, heimsmeistari ökumanna hætti óvænt í Formúlu 1 eftir tímabilið í fyrra.

„Síðan ég kom til liðsins í janúar hefu ég notið þess að vinna hér hvern einasta dag. Móttökurnar voru góðar og sömuleiðis hefur stuðningurinn frá liðinu og aðdáendum þess verið ómetanlegur,“ sagði Bottas.

„Fyrir liðið er það góð aukaafurð að það ríkir virðing á milli ökumanna okkar. Þeir vinna vel saman og eru það sem við þurfum til að takast á við keppinauta okkar,“ sagði Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes.

Bottas hefur unnið tvær keppnir á tímabilinu og er í þriðja sæti í heimsmeistarakeppni ökumanna. Bottas hefur auk tveggja unninna keppna náð í sjö verðlaunasæti.

Hann er 41 stigi á eftir liðsfélaga sínum, Lewis Hamilton í heimsmeistarakeppni ökumanna. Bottas hefur raunar enn möguleika á að verða heimsmeistari ökumanna. Hins vegar er líklegt að hann muni þurfa að starfa í þjónustu Hamilton það sem eftir er af tímabilinu til að tryggja að Hamilton eigi betri möguleika á að landa titlinum í baráttunni við Sebastian Vettel á Ferrari.


Tengdar fréttir

Porsche hefur áhuga á Formúlu 1

Þýski bílaframleiðandinn Porsche hefur gefið það út að áhugi sé innanhúss fyrir þátttöku í Formúlu 1. Porsche vill skoða innkomu árið 2021 með nýrri vélareglugerð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×