Bíó og sjónvarp

Stikla úr Vetrarbræðrum: Saga bræðra sem búa í einangraðri verkamannabyggð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Myndin Vetrarbræður hefur fengið góðar viðtökur.
Myndin Vetrarbræður hefur fengið góðar viðtökur.
Nú styttist óðum í frumsýningu dönsk/íslensku kvikmyndarinnar Vetrarbræður eða Vinterbrodre eftir Hlyn Pálmason.

Myndin fékk frábærar móttökur á heimsfrumsýningu sinni erlendis í síðasta mánuði og er að koma í kvikmyndahús á Íslandi núna undir lok september. 

Vetrarbræður segir frá tveimur bræðrum sem búa í einangraðri verkamannabyggð. Yngri bróðirinn lendir í ofbeldisfullum deilum við vinnufélaga sína þegar heimabrugg hans er talið ástæða þess að maður liggur við dauðans dyr. Stigmagnandi útskúfun hans í framhaldi þess reynir á samstöðu bræðranna en þegar eldri bróðirinn virðist hafa unnið ástir draumastúlku þess yngri fer óhefluð atburðarás af stað. Vetrarbræður er saga um skort á ást og löngun eftir því að vera elskaður og þráður.

Styttist í frumsýningu hér á landi

Með helstu hlutverk fara Elliott Crosset Hove, Simon Sears, Lars Mikkelsen (House of Cards) og Victoria Carmen Sonne. Myndin verður frumsýnd á Íslandi sem opnunarmynd RIFF þann 28. September kl.18 í Háskólabíó með enskum texta. Í beinu framhaldi af því, þann 29.sept, fer hún í almennar sýningar í Bíó Paradís og verður þar sýnd með íslenskum texta.

Hlynur Pálmason leikstýrir og skrifar handritið að Vetrarbræðrum sem er hans fyrsta mynd í fullri lengd og er alfarið á danskri tungu. Hlynur hefur getið sér góðs orðs sem leikstjóri síðustu ár en hann útskrifaðist úr Danska kvikmyndaskólanum árið 2013. Útskriftarmynd hans Málarinn (2013), með Ingvari E. Sigurðssyni í aðalhlutverki, var tilnefnd til Dönsku kvikmyndaverðlaunanna og vann t.a.m. verðlaun fyrir Bestu stuttmynd á bæði kvikmyndahátíðinni í Óðinsvéum og á RIFF.

Vetrarbræður var heimsfrumsýnd í ágúst í aðalkeppni kvikmyndahátíðarinnar í Locarno 2017 en eingöngu 18 myndir hlutu þann heiður og var hún eina myndin frá Norðurlöndunum þetta árið. Hátíðin er ein sú stærsta sinnar tegundar og nú orðin 70 ára gömul. Liðin eru 17 ár síðan íslenskur leikstjóri keppti síðast til verðlauna í aðalkeppninni en þá var Baltasar Kormákur að frumsýna fyrstu mynd sína, 101 Reykjavík.

Hér að neðan má sjá stiklu úr Vetrarbræðrum. 


Tengdar fréttir

Besti framleiðandi ársins

Anton Máni Svansson, framleiðandi kvikmyndarinnar Hjartasteins, sem hlotið hefur einróma lof gagnrýnenda, hlaut á dögunum verðlaun sem besti kvikmyndaframleiðandinn á Gautaborgarhátíðinni í Svíþjóð sem þetta árið var haldin í fertugasta sinn.

Ferlið var rússíbani

Hlynur Pálmason er talinn einn efnilegasti ungi leikstjóri Danmerkur. Sem stendur er Hlynur að leggja lokahönd á kvikmynd sína Vetrarbræður. Meðal leikara í myndinni er Lars Mikkelsen.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×