Innlent

Björt varð leið að sjá algjöran skort á auðmýkt hjá Bjarna

Birgir Olgeirsson skrifar
Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra.
Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra. Vísir/Anton Brink
„Ég varð svolítið leið að sjá algjöran skort á auðmýkt á þessum tímapunkti við þetta tilefni. En það kom kannski því miður ekki mikið á óvart,“ segir Björt Ólafsdóttir, ráðherra Bjartrar framtíðar, um orð Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra. Bjarni lét Bjarta framtíð heyra það á blaðamannafundi í Valhöll rétt í þessu vegna ákvörðunar flokksins að slíta stjórnarsamstarfinu við Viðreisn og Sjálfstæðisflokkinn.

„Orðin sem beindust að okkur varðandi rótleysi, þau tala fyrr sig sjálf. Við erum flokkurinn sem er með innflytjendur í framboði og ef það telst vera rótleysi þá er það bara þannig. Mér finnst það ekki eftirsóknarvert að vera með, eins og forsætisráðherra hældi sér af, flokk sem er rótgróin stofnun. Þannig stofnun er aldrei hreyfiafl í samfélaginu og það er það sem er að birtast okkur núna og hann gengst við því og vill ekki breytingar,“ segir Björt.

Hún segir ástæður stjórnarslitanna vera hvernig menn komu fram þegar beðið var um gagnsæi og að málin séu skoðuð með gagnsæi að leiðarljósi.

„Það er það sem að sprengir, þegar einn er tekinn út. Prinsippið sem átti að vera, að það ætti ekki að upplýsa um neinn nema föður forsætisráðherra, þá er prinsippið sprungið í þessu samhengi öllu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×