Íslenski boltinn

Fylkir aftur upp í deild þeirra bestu

Dagur Lárusson skrifar
Fylkismen fagna í sumar
Fylkismen fagna í sumar Vísir/vilhelm
Fylkir hefur tryggt sér sæti í Pepsi deildinni á næsta tímabili eftir 6-0 sigur á Haukum í dag.

Eins og vitað er féll Fylkir úr Pepsi deildinni á síðasta tímabili, en nú hefur liðið tryggt sér sæti á meðal þeirra bestu á nýjan leik.

Fylkir byrjaði leikinn með miklum krafti en þeir skoruðu þrjú mörk í fyrri hálfleik en það fyrsta kom á 27. mínútu.

Í seinni hálfleiknum héldu þeir uppteknum hætti og bættu við þremur mörkum til viðbótar og  var lokastaðan 6-0.

Mörk Fylkis skoruðu þeir Orri Sveinn Stefánsson, Andri Þór Jónsson og svo skoraðu þeir Andri Már Björgvinsson og Hákon Ingi Jónsson tvö mörk hvor.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×