Paulinho tryggði Barcelona sigur

Dagur Lárusson skrifar
Paulinho skorar sigurmarkið í dag
Paulinho skorar sigurmarkið í dag Vísir/getty
Barcelona bar siguorð á Getafe í spænsku deildinni í dag en leikurinn endaði 2-1.

Fyrir leik var Barcelona á toppnum með eins stiga forskot og því höfðu þær tækifæri á því að auka forskot sitt.

Það voru hins vegar Getafe sem komust yfir í leiknum á 39. mínútu en þar var á ferðinni Gaku Shibasaki og var staðan 1-0 í hálfleik.

Í seinni hálfleiknum tóku gestirnir við sér og jöfnuðu þeir metin á 62. mínútu en það var Denis Suarez sem að gerði það.

Allt virtist stefna í 1-1 jafntefli, en þá steig Paulinho fram og skoraði sigurmarkið og tryggði Barcelona stigin þrjú.

Barcelona situr því á toppi deildarinnar með 12 stig, fjórum stigum meira en Real Sociedad í 2. sætinu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira