Innlent

Drengurinn sem þyrlan sótti slasaðist á fæti

Kjartan Kjartansson skrifar
Þyrlan kom með dreginn til Reykjavíkur nú síðdegis, Myndin er úr safni.
Þyrlan kom með dreginn til Reykjavíkur nú síðdegis, Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm
Ellefu ára drengur sem þyrla Landhelgisgæslunnar sótti við Strútsskála á Fjallabaksleið syrði í dag hafði slasast á fæti. Tveir gangnamenn sem björgunarsveitarmenn aðstoðuðu eru ekki taldir alvarlega slasaðir.

Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörgu datt drengurinn nærri Strútsskála í dag. Björgunarsveitir frá Hellu og Hvolsvelli voru kallaðar út um klukkan tvö í dag. Þyrla Gæslunnar sótti drenginn og flutti hann á Landspítalann nú síðdegis.

Upplýsingar um tvo gangnamenn sem slösuðust einnig í dag var ekki að fá en meiðsl þeirra eru þó ekki sögð lífshættuleg.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×