Innlent

Solla og Tolli veittu dæmdum nauðgara meðmæli vegna uppreist æru

Birgir Olgeirsson skrifar
Maðurinn sótti um uppreist æru í mars 2016 og fékk samþykkt með undirskrift forsta Íslands í Reykjavík 8. ágúst sama ár.
Maðurinn sótti um uppreist æru í mars 2016 og fékk samþykkt með undirskrift forsta Íslands í Reykjavík 8. ágúst sama ár. Vísir/Vilhelm
Sólveig Eiríksdóttir, betur þekkt sem Solla á Gló, og myndlistamaðurinn Tolli Morthens, veittu umsagnir fyrir mann sem sótti um uppreist æru í mars árið 2016 og fékk 8. ágúst í fyrra. 

Maðurinn sótti um uppreist æru vegna tveggja ára fangelsisdóms sem hann hlaut árið 1998 en þar var hann fundinn sekur um nauðgun.

Tolli Morthens lýsir manninum sem ungum og traustum.Vísir/GVA
Ábyrgur og traustur

Þorlákur Morthens gengur jafnan undir nafninu Tolli Morthens. Í bréfinu sem hann ritar undir, sem dagsett er 8. mars 2016, kemur fram að það sé honum bæði ljúft og skylt að votta að hann hafi verið samferða manninum undanfarin ár.

„Og hef þar kynnst ábyrgum og traustum manni sem hefur lagt á sig mikla og heiðarlega vinnu í sjálfan sig og er í dag það sem við köllum, traustur samborgari,“ segir í bréfinu.

„Mér er það því ánægju efni að geta stutt hann með þessu bréfkorni til þess að hann hljóti uppreist æru okkur öllum til heilla,“ segir einnig í bréfinu en að lokum er tekið fram að ef frekari upplýsinga þarfnast sé sjálfsagt að veita það þegar hentar.

Solla hefur þekkt manninn í þrjátíu ár. Um fallegan vinskap er að ræða, segir Solla í bréfinu.Vísir/Vilhelm
Fallegur þrjátíu ára vinskapur

Í bréfinu sem Sólveig ritar undir, sem dagsett er 5. mars 2016, kemur fram að til hennar hafi leitað vinur hennar sem hún hefur þekkt í nær þrjátíu ár vegna umsóknar hans um að fá uppreist æru.

Hún segir fallegan vinskap hafa orðið á milli þeirra frá því þau hittust fyrst sem hefur haldist síðan. „Og ég er sannfærð um að muni aldrei rofna,“ skrifar Sólveig.

Hún segir manninn vera einstaklega opinn og hjartahlýjan, sem og góðan föður og afa eftir því sem hún veit best.

Sólveig segist hafa fengið að sjá manninn vaxa og dafna frá því dómur féll yfir honum.

„Og verða fallegri og stærri einstakling á öllum sviðum.“

Hún segir hann traustan, heiðarlegan og góðan vin með einstaklega sterka réttlætiskennd.

„Hann er greiðvikinn og vinamargur enda leita margir til hans í okkar sameiginlega vinahóp.“

Maðurinn fékk uppreist æru þann 8. ágúst í fyrra.
Ekki nafngreindur í dómnum

Í bréfinu mælir hún eindregið með því að hann fái uppreist æru, þar sem hann hefur með framkomu sinni og viðmóti, eftir að hann tók út refsingu sína, ekki sýnt henni né öðrum sem hann umgengst, neitt nema góða vináttu og virðingu.

„Hann á það að mínu mati einfaldlega skilið og hefur fyllilega til þess unnið,“ segir að lokum.

Umsókn mannsins er á meðal þeirra gagna sem dómsmálaráðuneytið afhenti fjölmiðlum sem varða má þeirra sem hafa fengið uppreist æru frá 1995 til 2016. Er nafn mannsins afmáð vegna þess að viðkomandi dómstóll sem hafði mál hans til meðferðar ákvað að dómur skyldi birtur án nafns.

Yfirleitt eru nöfn dæmdra manna birt í dómum nema í þeim tilfellum þegar þau eru afmáð til að vernda brotaþola. Í þeim tilfellum eru oftast tengsl milli hins dæmda og þolanda í málinu.

Hins vegar koma nöfn meðmælenda fram í umsókn mannsins, sem er hluti af þeim gögnum sem dómsmálaráðuneytið hefur veitt fjölmiðlum aðgang að, og er þar að finna nöfn Sólveigar og Þorláks.


Tengdar fréttir

Fyrrverandi landsliðsmaður í körfubolta fékk uppreist æru

Sigurður Ágúst Þorvaldsson, fyrrverandi landsliðsmaður í körfubolta og leikmaður meistarflokks KR, var á meðal þeirra sem fékk uppreist æru í september síðastliðnum. Sigurður Ágúst var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun árið 2010.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×