Íslenski boltinn

Heimir: Manna fegnastur þegar Shahab fór út af

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Heimir var sáttur með stigin þrjú.
Heimir var sáttur með stigin þrjú. vísir/stefán
Heimir Guðjónsson átti erfitt með að leyna ánægju sinni í leikslok eftir sigur FH á ÍBV í Pepsi-deild karla í kvöld. Steven Lennon tryggði FH sigur með marki á lokasekúndum leiksins.

„Það var frábært að skora á síðustu mínútunni og frábært að vinna þennan leik. Þetta var stór liður í að reyna að ná þessu Evrópusæti,“ segir Heimir í samtali við Vísi eftir leik.

Liðið situr í 2. sæti með leik til góða á liðin í kringum sig og með góða stöðu á KR og Stjörnuna sem koma á eftir. Í leiknum í kvöld leit ekki út yfir að FH myndi ná sigurmarkinu en það kom fyrir rest og Heimir gaf aldrei upp vonina.

„Nei, það er alltaf von. Við lentum í vandræðum með skyndisóknirnar þeirra og vorum að fá þá í stöði einn á móti einum,“ segir Heimir en ÍBV beitti skyndisóknum með Shahab Zahevi fremstan í flokki af miklum krafti, en hann skoraði mark ÍBV í leiknum.

Hann fór hins vegar út eftir 55. mínútna leik og var Heimir afar ánægður með það.

„Ég var nú manna fegnastur þegar Shahab fór af velli.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×