Innlent

Fékk tundurdufl í veiðarfærin

Gissur Sigurðsson skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar.
Þyrla Landhelgisgæslunnar. Vísir/Vilhelm
Sprengisérfræðingar Landhelgisgæslunnar héldu með þyrlu austur á Fáskrúðsfjörð í nótt til móts við fjölveiðiskipið Ljósafell, sem hafði fengið tundurdufl í veiðarfærin.

Eftir að þeir höfðu gengið tryggilega frá duflinu var skipinu siglt til hafnar, en ekki var tekin áhætta á því á meðan óvissa ríkti.

Duflið verður svo gert óvirkt á afskekktum stað í dag. Ekki liggur enn fyrir hvers lenskt duflið er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×