Innlent

Guðjón Skarphéðinsson fékk uppreist æru árið 1995

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Guðjón Skarphéðinsson hefur alla tíð haldið fram sakleysi sínu.
Guðjón Skarphéðinsson hefur alla tíð haldið fram sakleysi sínu. Vísir
Guðjón Skarphéðinsson, sem dæmdur var í tíu ára fangelsi fyrir manndráp af gáleysi árið 1980, fékk uppreist æru árið 1995. Guðjón sat inni í fjögur og hálft ár en hann var dæmdurásamt Kristjáni Viðari Júlíussyni og Sævari Ciesielski fyrir að hafa orðið Geirfinni Einarssyni að bana. Allir þrír héldu alla tíð fram sakleysi sínu.

Málið er líklega umtalaðasta og umdeildasta sakamál Íslandssögunnar, hluti af Guðmundar- og Geirfinnsmálunum, og er enn til meðferðar í kerfinu. Endurupptökunefnd féllst fyrr á árinu á beiðni Guðjóns og fjögurra annarra að málin yrðu tekin upp að nýju.

Að neðan má sjá frétt Stöðvar 2 frá því í febrúar þegar ákveðið var að málin yrðu tekin upp að stærstum hluta. Þar er rætt við Guðjón.

Sakborningarnir hlutu árið 1980 eins til sautján ára fangelsisdóma fyrir aðild þeirra að málunum. Á meðan málin voru til rannsóknar sat Guðjón og aðrir í einangrun svo mánuðum skipti.

Í gögnum frá dómsmálaráðuneytinu, sem fjölmiðlar fengu send um helgina, kemur fram að Guðjón hafi sótt um uppreist æru þann 10. desember 1995. Var umsóknin samþykkt af Vigdísi Finnbogadóttur, forseta Íslands átta dögum síðar.

Í umsókn Guðjóns kemur fram að hann hafi fengið reynslulausn 1981 á eftirstöðvum sem voru 1800 dagar. Hann fluttist til Kaupmannahafnar og stundaði almenna vinnu uns hann hóf nám í guðfræði við Kaupmannahafnarháskóla.

Hann lauk kandídatpróf í desember 1994 og lauk undirbúningsþjálfun sem krafist er af þeim guðfræðingum er vígjast til þjónustu innan dönsku kirkjunnar.

Guðjón tók við embætti prests á Staðastað árið 1996 og gegndi starfinu til ársins 2014.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×