Enski boltinn

Sakho kominn til Palace

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sakho í baráttu við Diego Costa á síðustu leiktíð.
Sakho í baráttu við Diego Costa á síðustu leiktíð. vísir/getty
Eftir mikið japl, jaml og fuður er varnarmaðurinn Mamadou Sakho loksins orðinn leikmaður Crystal Palace.

Liverpool samþykkti á endanum 26 milljón punda tilboð Palace í leikmanninn en það var fjórða tilboð félagsins í leikmanninn.

Liverpool vildi í fyrstu fá 30 milljónir punda fyrir Sakho en sætti sig að lokum við 26 milljónir.

„Ég elskaði áskorunina að spila fyrir Palace á síðustu leiktíð. Mér fannst Palace vera rétta félagið fyrir mig,“ sagði Sakho.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×