Körfubolti

Jón Arnór: Við megum alls ekki hika því þá erum við dauðir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón í leiknum í dag.
Jón í leiknum í dag. vísir/ernir
Jón Arnór Stefánsson var einn af leikmönnum íslenska körfuboltalandsliðsins sem ekki fann fjölina sína í tapinu á móti Póllandi í dag. Íslenska liðið gerði sér vonir um sigur en tapaði á endanum með 30 stiga mun.

Framundan er leikur við Frakka strax á morgun og þar þarf liðið að spila miklu betur ef liðið ætlar að sleppa við þriðja stórtapið í röð.

„Við þurfum að koma með sömu einbeitingu í leikinn því við vorum flottir í dag. Hugarfarið var flott og við ætluðum okkur þvílíkt sigur og trúðum á það að gætum unnið þennan leik. Við vorum yfirspilaðir,“ sagði Jón Arnór en íslenska liðið byrjaði leikinn mjög vel á móti Póllandi.

Allt fór að halla undan fæti í öðrum leikhluta og Pólverjar voru síðan langt á undir í seinni hálfleiknum. Hvað þarf að gerast í framhaldinu?

„Það þarf að koma eitthvað móment til okkar. Það er þarna einhversstaðar. Það gerist ef að fleiri komi með meira framlag og hitta úr skotunum sínum. Við erum að búa til fullt af færum í leikjunum,“ sagði Jón Arnór

„Við vorum meira agressívari í dag að skjóta á körfuna og koma okkur að körfunni. Við ætluðum að reyna að vera meira agressívari en við vorum í síðasta leik. Við vorum svolítið að hörfa til baka þá og við vorum frekar óöryggir. Við vorum ákveðnari í dag og ætluðum okkur að skjóta og skora en tuðran fór ekki niður í dag,“ sagði Jón Arnór sem sjálfur hitti aðeins úr 1 af 11 skotum sínum í leiknum.

Það er ekki langur tími sem strákarnir fá að jafna sig því leikurinn við Frakka er strax á morgun.

„Við þurfum að fá framlag frá fleirum og halda áfram að bæta okkur. Við verðum bara að fara agressívir í Frakkana og ekki gefa þeim neitt eftir, ekki vera hræddir við þá og alls ekki hika því þá erum við dauðir,“ sagði Jón Arnór.


Tengdar fréttir

Umfjöllun: Ísland – Pólland 61-91 | Strákarnir ískaldir í skotunum og töpuðu stórt

Mjög flott byrjun og frábær stuðningur í stúkunni dugði ekki íslenska körfuboltalandsliðinu á móti Póllandi í öðrum leik sínum á EM í Helsinki. Pólverjar unnu sig inn í leikinn, spiluðu af skynsemi á móti baráttuglöðum íslensku leikmönnum og unnu að lokum 30 stiga sigur, 91-61, eftir mjög sannfærandi seinni hálfleik.

Haukur Helgi: Þurfum að kýla þá fyrst

Haukur Helgi Pálsson, leikmaður íslenska landsliðsins í körfubolta, segir að í sannleika sagt sé íslenska liðið ekkert verra en Pólland. Ísland tapaði þó leik liðanna í dag með 30 stiga mun, 91-16.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×