Innlent

Þorgerður lætur af störfum sem kórstjóri hjá MH

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Þúsundir ungmenna hafa hlotið tónlistaruppeldi í Hamrahlíðakórunum undir vaskri stjórn Þorgerðar.
Þúsundir ungmenna hafa hlotið tónlistaruppeldi í Hamrahlíðakórunum undir vaskri stjórn Þorgerðar. Vísir/Stefán
Þorgerður Ingólfsdóttir, kórstjóri Hamrahlíðakóranna mun láta af störfum nú í haust eftir 50 ár í starfi sem kórstjóri við Menntaskólann í Hamrahlíð. Hefur staða kórstjóra verið auglýst á vef stjórnarráðsins.

Þorgerður hefur verið stjórnandi kórs MH frá stofnun hans árið 1967 og árið 1982 stofnaði hún framhaldskór hans, Hamrahlíðarkórinn. Hún er enn um þessar mundir að stjórna kór skólans en gert er ráð fyrir að hún láti af störfum í lok október.

Undir forystu Þorgerðar hafa kórarnir tveir unnið hvern sigurinn af öðrum hvort sem er á tónleikum innanlands eða á alþjóðlegum tónlistarhátíðum víða um heim. Þúsundir ungmenna hafa hlotið tónlistaruppeldi í Hamrahlíðarkórunum hjá Þorgerði, meðal þeirra eru margir af fremstu tónlistarmönnum þjóðarinnar.

Þegar Þorgerður kom til starfa sem kórstjóri hjá Menntaskólanum við Hamrahlíð var hún aðeins litlu eldri en nemendurnir sjálfir, eða um 23 ára gömul. Engu að síður vann hún þar frumkvöðlastarf í kórastarfi á Íslandi því í þá daga var engin hefð fyrir því að í framhaldsskólum landsins væru kórar nemenda starfandi. Hún sest nú í helgan stein á sínu 74. aldursári.

Ekki náðist í Þorgerði við vinnslu fréttarinnar.


Tengdar fréttir

Þorgerður Borgarlistamaður Reykjavíkur

Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri var í dag útnefnd Borgarlistamaður Reykjavíkur árið 2012. Útnefningin fór fram í Höfða þar sem Jón Gnarr borgarstjóri veitti listamanninum að þessu tilefni ágrafinn stein, heiðursskjal og viðurkenningarfé.

Góð tilfinning að þjóna

Ég lít á starf mitt sem listrænt uppeldisstarf,“ segir Þorgerður. „Kennararstarf þar sem maður tekur á móti ómótuðum unglingum. Það að ná góðum árangri í tónlistinni er auðvitað takmarkið og oft tekst með prýði að ná listrænum hæðum í starfinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×