Körfubolti

Strákarnir fóru í myndatöku hjá FIBA fyrir æfingu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þessir þrír voru flottir saman í myndatökunni.
Þessir þrír voru flottir saman í myndatökunni. Mynd/KKÍ
Íslenska körfuboltalandsliðið er búið að koma sér vel fyrir í Helsinki og það er allt af verða klárt fyrir fyrsta leikinn sem verður á móti Grikkjum á morgun.

Liðið er búið að æfa í keppnishöllinni sem er hin glæsilegasta en áður en strákarnir komust á fyrstu æfinguna þá beið þeirra myndataka á venum FIBA.

Öll liðin fara í gegnum opinbera myndatöku á vegum evrópska körfuboltasambandsins og var nú valin sú leið að boða liðin í myndatöku á undan fyrstu æfingu liðanna í keppnishöllinni.

Körfuboltasambandið sagði frá og birti myndir af myndatökunni á fésbókarsíðu sinni eins og sjá má hér fyrir neðan.







Mynd/KKÍ
Mynd/KKÍ
Mynd/KKÍ
Mynd/KKÍ



Fleiri fréttir

Sjá meira


×