Sport

Phelps skorar á Conor í sundkeppni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Phelps setti þessa skemmtilegu mynd á Twitter.
Phelps setti þessa skemmtilegu mynd á Twitter.
Nú þegar Conor McGregor hefur boxað við einn besta hnefaleikmann allra tíma eru menn farnir að grínast með hvaða íþrótt hann ætli að reyna sig í næst.

Besti sundkappi allra tíma, og einn besti íþróttamaður allra tíma, Michael Phelps fylgdist að sjálfsögðu með bardaganum um síðustu helgi og hrósaði báðum köppum eftir bardagann.

Í kjölfarið sendi hann skilaboð á Conor á Twitter þar sem hann skoraði á hann í sundkeppni. Góður húmor þar en hvur veit nema Conor segi samt bara já við þessu boði. Hann er líklegur til alls.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×