Enski boltinn

Tottenham fékk loksins nýjan leikmann

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Nýr leikmaður. Það gleður líklega Spursara.
Nýr leikmaður. Það gleður líklega Spursara. mynd/twitter
Það hefur verið lítið að gerast á leikmannamarkaðnum hjá Tottenham í sumar en það hljóp loksins á snærið í dag.

Þá samdi Tottenham við hinn 19 ára gamla Argentínumann Juan Foyth.

Hann kemur til félagsins frá Estudiantes og samdi við Tottenham til ársins 2022.

Mauricio Pochettino, stjóri Spurs, hefur lengi haft þennan strák í sigtinu og nú er hann búinn að landa honum.

Þetta er einn efnilegasti varnarmaður heims og PSG var einnig að reyna að fá hann í sínar raðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×