Vilja skipta út 105 ára gömlu húsi fyrir sex hæða blokk Garðar Örn Úlfarsson skrifar 31. ágúst 2017 06:00 Gamla timburhúsið á Klapparstíg 10 er skammt frá Þjóðleikhúsinu. Umfang nýja hússins verður talsvert meira en þess gamla samkvæmt uppdráttum. Vísir/Anton Brink
Eigendur Klapparstígs 10 vilja leyfi frá Reykjavíkurborg til að flytja 105 ára gamalt íbúðarhús af lóðinni og byggja þar í staðinn blokk sem yrði 23 sinnum stærri en gamla húsið. Húsið er eign hjónanna Birnu Eggertsdóttur og Ólafs Theodórs Ólafssonar sem segir þau ekki vilja tjá sig um málið því það sé á byrjunarstigi. Hins vegar má sjá af gögnum sem send hafa verið borginni að ætlunin er að flytja gamla húsið, sem er 81 fermetri, á brott og reisa í staðinn 1.885 fermetra fjölbýlishús á fimm hæðum auk bílakjallara fyrir tíu bíla. Við þetta myndi húsið fylla út í lóðina, sem er 325 fermetrar, og nýtingarhlutfall hennar fara úr 0,25 í 5,8. Saga hússins er rakin í bréfi sem þrír synir hjónanna, Skúli, Filipus og Daníel, skrifa og fylgir gögnum málsins. Segir þar að húsið hafi verið byggt af langömmu Ólafs Theodórs fyrir fjölskyldu hennar. „Þegar Óli og Birna keyptu húsið 1993 voru þau talin klikkuð, því ástandi þess var vægast sagt ábótavant,“ segir í bréfinu. „Við bókstaflega gerðum allt upp.“Umfang nýja hússins verður talsvert meira en þess gamla samkvæmt uppdráttum.Húsið og minningarnar úr því eru sagðar ótrúlega dýrmætar fjölskyldunni. „Við hverja framkvæmd og viðgerðir á húsinu var alltaf leitað til borgarinnar eftir styrkjum en borgin sá sér ekki fært að veita þá, utan eitt hundrað þúsund króna styrk vegna viðgerðar á grunni.“ Þá segir að orðið Skuggahverfi hafi aðra merkingu fyrir fjölskylduna á Klapparstíg 10 en fyrir flesta vegna stóru húsanna sem risið hafi í kring um þau. „Það er okkur enn ferskt í minni þegar Ólafur þurfti að klifra upp á þak með nýja örbylgjuloftnetið og við hin mynduðum kallkeðju niður til að stilla það og ná einhverri mynd, sú mynd varð samt ekki eins góð og hjá öðrum, við vorum í skugga af nýreistum háhýsum.“Ætlunin er að fylla út í litlu lóðina á Klapparstíg 10. Vísir/Anton Brink Fram kemur í bréfinu að miklar breytingar séu á döfinni í Skuggahverfinu og að fjölskyldan vilji taka tillit til þeirra og sögunnar í framkvæmdum sínum og byggja hús sem þau geti verið stolt af. Það verði með íbúðum fyrir fjölskyldur þeirra og fleiri íbúðum til að þau leggi sitt af mörkum til að sporna gegn skorti á íbúðarhúsnæði í miðbænum. „Við eigum frábærar minningar af þessum stað sem munu endast okkur alla ævi, og þetta hús er sennilega engum dýrmætara en okkur en nú erum við hins vegar komin að þeim tímamótum að við viljum gera slíkt hið sama og Helga, langalangalangamma okkar, gerði fyrir rúmri öld, byggja heimili fyrir okkur til frambúðar, og gera nýjar minningar fyrir næstu ættliði,“ segir í bréfi sonanna þriggja. Bræðurnir segja að spyrja megi af hverju fjölskyldan selji ekki einfaldlega húsið og komi sér fyrir annars staðar. „Svarið við því er einfalt – það finnst okkur vera vanvirðing gagnvart sögunni, og það væri ekki okkar saga og við viljum ekki að hún, 100 ár í bígerð, endi svoleiðis.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Ólík sýn á hvort Íslandi eigi að styðja vörn Úkraínumanna Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn Erlent Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu Innlent „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Innlent VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Innlent Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Innlent Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Innlent Fleiri fréttir Ólík sýn á hvort Íslandi eigi að styðja vörn Úkraínumanna „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Sækja veikan jeppamann á Langjökli VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Lokasprettur fyrir kosningar og umræða um kynbundið ofbeldi Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Hvar áttu að kjósa í forsetakosningum? Fyrirskipar forsætisráðuneytinu að fara yfir ferla „Heiðurstengt ofbeldi er ekki okkar stærsta vandamál“ Eldgosið í beinni útsendingu Taka aftur við eignum í Grindavík eftir helgi Páll sýknaður Tuttugu sendlar Wolt eiga yfir höfði sér kæru Þorvaldur tekur undir goslokaspá Haraldar Gætu gloprað niður sigrinum eða tryggt sér hann í kvöld Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Viðhald eigna og verðmætabjörgun í Grindavík í dag Piparúða beitt gegn mótmælendum í Skuggasundi Maðurinn sem féll í Fnjóská fannst látinn Lífið brosir við mæðgum eftir áralangt einelti Þakkar fyrir að hafa ekki þurft að beita kylfum Notuðu piparúða á mótmælendur Hvattur til að draga sig til hlés til að klekkja á Katrínu Sérfræðingar í straumvatnsleit aðstoða við leit í Fnjóská Gekk misvel að tala um kvótakerfið á fjörutíu sekúndum á ensku Bjarni fundar með Selenskí í Stokkhólmi Alþjóðasamfélagið sé að klikka á Gasa Sjá meira