Bæjarstjórinn leikur á fiðluna í kvöld Guðný Hrönn skrifar 31. ágúst 2017 09:45 Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri leikur á fiðluna í kvöld.
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, er einn þriggja tónlistarmanna sem troða upp í Keflavíkurkirkju í kvöld. Um er að ræða upphaf Ljósanætur 2017 og hafa svokallaðir Hjólbörutónleikar vakið gífurlega lukku. Auk Kjartans koma fram þeir Elmar Þór Hauksson söngvari og Arnór Vilbergsson organisti. Þetta er í þriðja skiptið sem þremenningarnir taka sig saman. „Þetta hefur fest sig í sessi, enda húsfyllir í þau skipti sem við höfum spilað. Við erum búnir að setja lagalistann inn á Facebook og menn geta farið að undirbúa sig fyrir kvöldið,“ segir Kjartan Már en fyrirkomulag tónleikanna er dálítið óvenjulegt þar sem hópurinn hefur tekið saman 184 lög sem fara á lista og svo sjá gestir sjálfir um að velja með því að t.d. gala yfir hópinn.„Í fyrra tókum við með okkur baðvog og fengum tónleikagesti til að stíga á og sú tala sem upp kom réð þá næsta lagi. Þetta var vinsælt, þó aðallega hjá körlunum. Annars voru það fæðingarár og annað slíkt sem fengu að fljúga og vöktu lukku.“ Tónleikarnir hefjast klukkan 20.00 í kvöld og er aðgangseyrir 1.500 krónur.Aðhugið að tónleikarnir eru í kvöld en ekki annað kvöld eins og kom fram í Fréttablaðinu.
Mest lesið Aníta Briem og Hafþór eiga von á barni Lífið Arnar Þór selur Arnarneshöllina Lífið Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Lífið Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Lífið Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Lífið Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Lífið Bara 33 ára og lífið á eftir að koma í ljós Lífið Daði keypti hús Jóns Jónssonar með mömmu sinni á yfirverði Lífið Mömmu þykir ekki vænna um Friðrik Dór en Jón Ragnar Lífið Ofurskvísur landsins fögnuðu „Heiðarlegri“ fatalínu Heiðar Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Tólf klukkustunda gjörningur í Hörpu í dag Torfbærinn í Vesturbænum sem stóð fram á níunda áratuginn Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Arnar Þór selur Arnarneshöllina Á 90 þúsund servíettur í Hafnarfirði Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Einstakur Fender Telecaster í Hljóðfærahúsinu Fólk ferðist alla leið frá Ástralíu til að sækja Víkingahátíðina Tignarleg miðbæjaríbúð Helgu Ólafs til sölu Íslensk lopapeysa flutt milli heimsálfa vegna mestu eftirsjár ævinnar Breytti hænsnahúsi í verkstæði sitt Teknóhátíð á Radar alla helgina Enn neisti hjá Bad Bunny og Kendall Jenner Banjóleikari frá Nashville með Baggalúti og Sinfó Hugsar hlýtt til áranna í Los Angeles Aníta Briem og Hafþór eiga von á barni Selur húsið í Garðabæ eftir kaupin á glæsihúsi Ingu Lindar Sjö daga afmælissæla í Reykjanesbæ Þrjú hundruð börn reyna að dorga furðulegasta fiskinn Bara 33 ára og lífið á eftir að koma í ljós Daði keypti hús Jóns Jónssonar með mömmu sinni á yfirverði „Ég væri ekkert án þeirra“ Gekk í tvo tíma að flugvellinum til að komast hjá leigubílagjaldi Friðrik Ómar setur Reykhúsið aftur á sölu og lækkar verðið Linda lætur sér Lindarbraut lynda Áttaði sig á stöðunni á fundi með Höllu Ungt athafnapar keypti hönnunarhús Margrétar í Garðabæ Sjá meira