Aðalpersóna Oscar Wildes verður kona í meðförum St. Vincent Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 20. ágúst 2017 16:33 Dorian Gray verður kona undir leikstjórn St. Vincent. Visir/getty
Listakonan Annie Clark, betur þekkt undir listamannsnafninu St. Vincent, leikstýrir kvikmyndinni The Picture of Dorian Gray. Variety sagði fyrst frá þessu.Um er að ræða aðlögun á samnefndri skáldsögu Oscar Wildes sem kom fyrst út í tímaritinu Lippincott’s monthly Magazine árið 1890 en var síðan gefin út 1891. Þetta var jafnframt eina skáldsagan sem Wilde gaf út á ferlinum. Það sem helst vekur athygli í erlendum fjölmiðlum er það að í meðförum St.Vincent verður aðalpersóna sögunnar kona og bíða margir spenntir eftir því hvernig viðtökurnar verða á kvenkyns Dorian Gray sem í sögunni er heltekinn af fegurðinni, fegurðarinnar vegna.St. Vincent er þekkt fyrir að fara ótroðnar slóðir.Vísir/gettySt. Vincent hefur hingað til verið þekkt fyrir tónlistarsköpun. Í tónlist hennar ægir saman ólíkum stefnum og lætur hún reyna á nýstárlegar hugmyndir í útsetningum. St. Vincent er gædd þeim hæfileikum að geta spilað á gítar, bassa, orgel og píanó. Þá hefur hún hlotið Grammy verðlaun fyrir plötuna sína St. Vincent. St. Vincent er ekki með öllu ókunnug kvikmyndaleikstjórn því fyrr á þessu ári leikstýrði hún hryllingsmyndinni XX ásamt leikstjórunum Melanie Lyndskey, Joe Swanberg og Sheilu Vand. Myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni Sundance. David Birke skrifar handritið og fær það hlutverk að aðlaga skáldverkið að kvikmynd. The Picture of Dorian Gray skipar mikilvægan sess innan gæðakerfis bókmenntanna en bókin þykir snerta á ýmsum siðferðilegum álitamálum. Oscar Wilde er einn litríkasti rithöfundur Breta á síðari hluta 19. aldar og er löngum þekktur fyrir hnyttin tilsvör og ýmis spakmæli sem eru eignuð honum.Einnig er það helst í fréttum af listakonunni að St. Vincent gefur brátt út nýja plötu.Vísir/getty
Mest lesið Hataði á sér brjóstin og vildi skera þau af Lífið Best klæddu stjörnurnar á Met Gala Tíska og hönnun Laufey skein skært á Met Gala Tíska og hönnun Hvaða jólasveinn verður næsti forseti? Lífið Endurgerðu Síðustu kvöldmáltíðina eftir síðustu pylsuna Lífið Óli Palli ætlar að horfa á Stöð 2 í kvöld Lífið Nánast engar líkur taldar á að Hera komist áfram Lífið Smalahundaþjálfun og æsingur í hundum vegna gestagangs Lífið Salurinn aldrei sungið eins mikið með einu lagi Lífið „Svo hræðilega óyfirstíganlegt að ég þurfti að rífa plásturinn af“ Tónlist Fleiri fréttir Ísland geti orðið fyrsta reyklausa land í heimi Glösin á loft fyrir nýjum burstahreinsi „Pollróleg“ en full eftirvæntingar fyrir kvöldinu Nánast engar líkur taldar á að Hera komist áfram Óli Palli ætlar að horfa á Stöð 2 í kvöld Salurinn aldrei sungið eins mikið með einu lagi Hvaða jólasveinn verður næsti forseti? Hataði á sér brjóstin og vildi skera þau af Smalahundaþjálfun og æsingur í hundum vegna gestagangs Endurgerðu Síðustu kvöldmáltíðina eftir síðustu pylsuna Myndaveisla: Svana töfraði fram suðræna veislu fyrir UAK Myndaveisla: Mari og Guðni féllust í faðma á ögurstundu Stærstu stjörnur rappsins bera hvor annan þungum sökum Baulað á Kim Kardashian þegar Brady var grillaður Söngskóli Sigurðar Demetz með Oklahoma í Borgarleikhúsinu Fleiri svartsýnir á gott gengi Heru Sumarlegir réttir að hætti Jönu Emilíana Torrini kemur fram í Hörpu Búa til barnaefni á íslensku á Youtube Er hægt að skjóta í gegnum byssukúlu? Blóm og plöntur sem þola kuldann Neyslan var orðinn algjör þrældómur Stjörnulífið: Líf og fjör og ástin blómstar Martröð að fara á útikamar í svartamyrkrinu í Eistlandi sem barn Bítið í beinni „Ég verð að komast til Japan“ „Við erum öll byrjendur á einhverjum tímapunkti“ Sonurinn skírður Gylfi og Alexandra eiga von á barni Bernard Hill er látinn Sjá meira