Lífið

Aðalpersóna Oscar Wildes verður kona í meðförum St. Vincent

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Dorian Gray verður kona undir leikstjórn St. Vincent.
Dorian Gray verður kona undir leikstjórn St. Vincent. Visir/getty
Listakonan Annie Clark, betur þekkt undir listamannsnafninu St. Vincent, leikstýrir kvikmyndinni The Picture of Dorian Gray. Variety sagði fyrst frá þessu.

Um er að ræða aðlögun á samnefndri skáldsögu Oscar Wildes sem kom fyrst út í tímaritinu Lippincott’s monthly Magazine árið 1890 en var síðan gefin út 1891. Þetta var jafnframt eina skáldsagan sem Wilde gaf út á ferlinum.

Það sem helst vekur athygli í erlendum fjölmiðlum er það að í meðförum St.Vincent verður aðalpersóna sögunnar kona og bíða margir spenntir eftir því hvernig viðtökurnar verða á kvenkyns Dorian Gray sem í sögunni er heltekinn af fegurðinni, fegurðarinnar vegna.

St. Vincent er þekkt fyrir að fara ótroðnar slóðir.Vísir/getty
St. Vincent hefur hingað til verið þekkt fyrir tónlistarsköpun. Í tónlist hennar ægir saman ólíkum stefnum og lætur hún reyna á nýstárlegar hugmyndir í útsetningum. St. Vincent er gædd þeim hæfileikum að geta spilað á gítar, bassa, orgel og píanó. Þá hefur hún hlotið Grammy verðlaun fyrir plötuna sína St. Vincent.

St. Vincent er ekki með öllu ókunnug kvikmyndaleikstjórn því fyrr á þessu ári leikstýrði hún hryllingsmyndinni XX ásamt leikstjórunum Melanie Lyndskey, Joe Swanberg og Sheilu Vand. Myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni Sundance.

David Birke skrifar handritið og fær það hlutverk að aðlaga skáldverkið að kvikmynd. The Picture of Dorian Gray skipar mikilvægan sess innan gæðakerfis bókmenntanna en bókin þykir snerta á ýmsum siðferðilegum álitamálum. Oscar Wilde er einn litríkasti rithöfundur Breta á síðari hluta 19. aldar og er löngum þekktur fyrir hnyttin tilsvör og ýmis spakmæli sem eru eignuð honum.

Einnig er það helst í fréttum af listakonunni að St. Vincent gefur brátt út nýja plötu.Vísir/getty





Fleiri fréttir

Sjá meira


×