Dæmd í lífstíðarfangelsi fyrir Arboga-morðið Atli Ísleifsson skrifar 21. ágúst 2017 13:15 Grunur leikur á að Johanna Möller hafi einnig átt þátt í dauða annars kærasta síns en sá fannst látinn í grunnu vatni við sumarbústaðinn árið 2015. Vísir/Getty
Dómstóll í Svíþjóð hefur dæmt Johanna Möller í lífstíðarfangelsi fyrir morð á föður sínum og tilraun til morðs á móður sinni á síðasta ári. Málið hefur gengið undir nafn Arboga-málið í sænskum fjölmiðlum og hefur það verið eitt mest um fjallaða sakamálið í Svíþjóð á síðustu árum. Fyrrverandi kærasti Möller, Mohammad Rajabi, var í morgun einnig dæmdur fyrir aðild sína að málinu, en hann hlaut fjórtán ára dóm. Verður honum vísað úr lendi að afplánun lokinni og meinað að snúa aftur til Svíþjóðar. Í frétt SVT kemur fram að lögmaður Möller segi að til standi að áfrýja dómnum. Þau Möller og Rajabi voru fundin sek af dómara fyrr í sumar, en gert að gangast undir geðrannsókn áður en refsing yrði ákveðin. Möller var dæmd fyrir morðið á föður sínum og tilraun til að myrða móður sína þann 3. ágúst 2016 skammt frá Arboga, um hundrað kílómetrum vestur af Stokkhólmi. Ráðist var á foreldrana með hníf í sumarbústað fjölskyldunnar og lést faðirinn af völdum sára sinna. Móðirin særðist alvarlega.Ósætti um peninga Rajabi, sem er á þrítugsaldri, viðurkenndi þátt sinn í árásinni og sagði Möller hafa gefið honum hnífinn sem notaður var. Við réttarhöld kom fram að afbrýðisemi og ósætti um peninga hafi leitt til árásarinnar. Möller var sömuleiðis fundin sek um stórfelld svik, skjalafals, tilraunir til að múta opinberum starfsmönnum, brot gegn valdstjórn og morðhótanir. Konan neitaði öllum ákæruliðum. Grunur leikur á að hún hafi átt einnig þátt í dauða annars kærasta síns en sá fannst látinn í grunnu vatni við sumarbústaðinn árið 2015. Þau Möller og Rajabi hefur einnig verið gert að greiða aðstandendum fórnarlamba miskabætur.
Tengdar fréttir Arboga-morðið í Svíþjóð: Réðst á foreldra sína vegna ósættis um peninga Dómstóll í Svíþjóð dæmdi í dag karl og konu sek af ákæru um morð og tilraun til morðs á árunum 2015 og 2016. 28. júní 2017 10:35 Mest lesið Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Dularfulla minkagildruhvarfið Innlent Veiðiþjófar stálu frá barni við Hítarvatn Innlent Heyrði mikla skruðninga í Hítárdal fyrir miðnætti á föstudag Innlent Mikil grjótskriða úr Fagraskógarfjalli: „Stórt fjall í ánni“ Innlent Veiðileyfasali fékk engar bætur dæmdar fyrir þjófnað í Kjarrá Innlent Helga aðeins 15 mínútur að landa fyrsta laxinum Innlent Hítará hefur fundið sér nýjan farveg Innlent Ótryggt ástand undir Fagraskógarfjalli Innlent Heimamanna bíður það verkefni að finna nafn á nýja lónið sem er komið til að vera Innlent Fleiri fréttir Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Sjá meira
Arboga-morðið í Svíþjóð: Réðst á foreldra sína vegna ósættis um peninga Dómstóll í Svíþjóð dæmdi í dag karl og konu sek af ákæru um morð og tilraun til morðs á árunum 2015 og 2016. 28. júní 2017 10:35