Innlent

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni

Thomas Möller Olsen, sem grunaður er um að hafa ráðið Birnu Brjánsdóttur bana í janúar síðastliðnum, gjörbreytti framburði sínum við aðalmeðferð málsins í morgun. Fjallað verður ítarlega um málið í fréttum Stöðvar tvö klukkan hálf sjö.

Þar kynnum við okkur líka ástæður þess að skólasetningu Háaleitisskóla hefur verið frestað, en mikill meirihluti starfsmanna þjáist af magapest.

Loks fjöllum við um almyrkva á sólu sem nú stendur yfir og verðum í beinni frá Ölveri, þar sem stuðningsmenn Everton fagna fyrsta leik Gylfa Sigurðssonar með félaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×