Lífið

Hún er heyrnarlaus, syngur eins og engill og fær alltaf standandi lófaklapp

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mandy Harvey að gera frábæra hluti.
Mandy Harvey að gera frábæra hluti.
Mandy Harvey er að slá rækilega í gegn í raunveruleikaþáttunum America´s Got Talent en hún missti heyrnina þegar hún var 18 ára. Hún hefur verið heyrnarlaus í tíu ár og mætir ávallt með túlk með sér á sviðið.

Hún hefur sungið síðan hún var fjögurra ára gömul. Eftir að hún missti heyrnina hætti hún alfarið í tónlist. Nýlega tók hún ákvörðun að snúa aftur og notar hún önnur skynfæri til að finna fyrir tónlistinni. Hún stendur til dæmis á sviðinu á sokkunum til að finna titringinn í sviðinu.

Að þessu sinni tók Harvey frumsamið lag sem ber nafnið Mara's Song en var flutningurinn algjörlega óaðfinnanlegur eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×