Fótbolti

Heimir um mark Gylfa: Sýnir bara hæfileikana hjá manninum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Heimir Hallgrímsson og Gylfi Þór Sigurðsson.
Heimir Hallgrímsson og Gylfi Þór Sigurðsson. Mynd/Samsett
Heimir Hallgrímsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins, tilkynnti í dag leikmannahóp sinn fyrir komandi leiki á móti Finnlandi og Úkraínu í undankeppni HM.

Heimir hitti íslenska fjölmiðlamenn í Laugardalnum og ræddi þessa mikilvægu leiki. Heimir var auðvitað spurður út í glæsimark Gylfa Þórs Sigurðssonar á móti Hajduk Split í Evrópudeildinni í gærkvöldi.

Eftir aðeins sextán sekúndna leik sýndi Gylfi á sama sekúndubroti bæði útsjónarsemi sína og skottækni þegar hann skoraði með ótrúlegu skoti frá miðju sem sveig yfir markvörð Hajduk Split og í netið.

„Helgi hefur verið að gera þetta á æfingunum okkar,“ sagði Heimir Hallgrímsson í léttum tón þegar hann var spurður út í mark Gylfa á fjölmiðlafundinum í dag en Heimir leyfði sér aðeins að grínast með Helga Kolviðsson aðstoðarþjálfara.

Heimir sparaði lýsingarorðin þegar kom að því að tala um markið magnaða hjá Gylfa sem hefur verið ein allra stærsta fréttin í fótboltaheiminum síðasta hálfa sólarhringinn.

„Þetta sýnir bara hæfileikana hjá manninum. Það er hægt að segja ýmislegt um hann en markið talað fyrir sig sjálft,“ sagði Heimir.

„Vonandi getur hann nýtt sér þetta fyrir leikina með okkur,“ sagði Heimir.

„Það er fínt fyrir hann að vera búinn að afgreiða þessi félagsskipti til Everton og gott að hann sé byrjaður að spila ekki síst ef hann er á eldi eins og hann var í gær,“ sagði Heimir.

Ísland mætir Finnum og Úkraínumönnum í undankeppni EM en fyrst mun Gylfi spila með Everton á móti Chelsea um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×