Enski boltinn

Carroll bar vitni fyrir enskum dómstólum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Andy Carroll
Andy Carroll Vísir/Getty
Enski framherjinn Andy Carroll bar vitni fyrir dómstóla í Englandi í dag í máli gegn þeim sem sagður er reynt hafa að ræna hann í nóvember á síðasta ári.

Carroll var á leið heim af æfingu með félagsliði sínu West Ham þegar honum var ógnað af tveimur mönnum á mótorhjólum og var annar þeirra vopnaður skotvopni.

Sjá einnig: Byssu beint að Andy Carroll

Hinn 22 ára Jack O'Brien er sakaður um að hafa reynt að ræna úri Carroll, sem metið er á 22 þúsund pund, eða tæpar þrjár milljónir íslenskra króna. O'Brien neitar sök í málinu. 

Carroll sagðist hafa verið í kyrrstöðu á umferðarljósum þegar maður á mótorhjóli kemur upp að honum og hælir úri hans. Carroll þakkaði fyrir sig og horfði á manninn í um 10 sekúndur, samkvæmt vitnisburði Carroll, þar sem hann hélt hann þekkti ökumanninn og sá ætlaði að tala við sig. Þegar hann svo ætlaði að aka af stað á maðurinn að hafa sagt „gefðu mér úrið þitt,“ samkvæmt vitnisburðinum. 

Framherjinn sagðist fyrst hafa haldið að þetta væri vinur hans að hrekkja sig, en þegar hann áttaði sig á stöðunni brunaði hann í burtu og keyrði inn á öfugan vegarhelming og rakst þar utan í nokkra aðra bíla. 

Spiluð var upptaka af símtali Carroll við neyðarlínuna í réttarsalnum. 

„Það eru tvö mótorhjól, annað fyrir aftan mig og ökumaðurinn er með byssu, ég veit ekki hvað ég á að gera,“ sagði Carroll á upptökunni og bætti svo við að hann væri atvinnumaður í fótbolta og spilaði í ensku úrvalsdeildinni.

Bílflauta heyrðist á upptökunni áður en Carroll blótar í símann og segir: „Ég klessti á helling af bílum, ég veit ekki hvað ég á að gera.“

Carroll komst að lokum aftur á æfingasvæði West Ham, en mennirnir á mótorhjólunum veittu honum eftirför.

Lífsýni úr O'Brien fundust á jakka og hjálmi sem tengd hafa verið við atvikið. Verjandi O'Brien, Michael Edmonds, sagði sakborninginn hafa notað mótorhjólið, hjálminn og jakkann áður við glæpsamleg athæfi, en hann hafi ekki verið viðriðinn þetta atvik.

Réttarhöld í málinu halda enn áfram og er búist við að málsmeðferð taki þrjá daga. Daily Mail greinir frá réttarhöldunum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×