Íslenski boltinn

Byrjunarliðin í bikarúrslitaleiknum: Hafsteinn ekki í hóp vegna meiðsla

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hafsteinn er fjarri góðu gamni í dag.
Hafsteinn er fjarri góðu gamni í dag. vísir/stefán
Byrjunarliðin fyrir úrslitaleik ÍBV og FH í Borgunarbikar karla hafa verið gefin út.

Hafsteinn Briem er fjarri góðu gamni hjá ÍBV vegna meiðsla. Jónas Tór Næs er hins vegar klár í slaginn og byrjar.

Gunnar Heiðar Þorvaldsson er í fremstu víglínu hjá ÍBV og á bekknum eru hvorki fleiri né færri en fjórir framherjar.

Fátt kemur á óvart í byrjunarliði FH. Eyjamaðurinn Þórarinn Ingi Valdimarsson kemur aftur inn í byrjunarliðið í stað Robbies Crawford sem er ekki í hóp vegna meiðsla.

Króatíski kantmaðurinn Matija Dvornekovic er á varamannabekk FH.

Byrjunarliðin má sjá hér að neðan.

Leikur ÍBV og FH er í beinni textalýsingu á Vísi sem má nálgast með því að smella hér.

Byrjunarlið og varamenn ÍBV og FH.mynd/skjáskot af vef ksí



Fleiri fréttir

Sjá meira


×