Íslenski boltinn

Sjáðu mörkin og vítaspyrnukeppnina er ÍBV komst í úrslitin | Myndband

ÍBV komst í úrslit Borgunarbikarsins í kvennaflokki með sigri á Grindavík fyrr í dag en eftir að staðan var jöfn 1-1 eftir framlengingu þurfti vítaspyrnukeppni til að útkljá úrslitin og þar voru Eyjakonur sterkari.

Fór leikurinn fram á Hásteinsvelli og komust heimakonur yfir snemma leiks með marki frá Cloé Lacasse en Elena Brynjarsdóttir jafnaði metin á síðustu mínútu uppbótartímans í seinni hálfleik og kom leiknum í framlengingu.

Þar kom ekkert mark og þurfti því vítaspyrnukeppni til að útkljá úrslitin en var sigur ÍBV aldrei í hættu og tryggði vítaspyrna Cloé Lacasse ÍBV 4-2 sigur í vítakeppninni.

Myndband frá mörkunum ásamt vítaspyrnukeppninni má sjá hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×