Fótbolti

Lazio vann dramatískan sigur á Juventus í ítalska Ofurbikarnum

Kristinn Páll TEitsson skrifar
Chiellini reynir að stöðva sóknarlotu Lazio.
Chiellini reynir að stöðva sóknarlotu Lazio. Vísir/getty
Lazio vann 3-2 sigur á Juventus í ítalska ofurbikarnum í kvöld. Juventus, sem var 0-2 undir þegar fimm mínútur voru til leiksloka, jafnaði metin en fékk á sig mark í uppbótartíma sem réð úrslitum.

Ciro Immobile kom Lazio yfir af vítapunktinum á 33. mínútu og á 54. mínútu bætti hann við öðru marki. Pablo Dybala svaraði fyrir Tórínóliðið á lokamínútunum.

Minnkaði hann muninn úr aukaspyrnu af 30 metra færi og jafnaði svo metin á 91. mínútu af vítapunktinum. Bæði mörkin með hans baneitraða vinstri fæti.

Leikmenn Juventus gleymdu sér algjörlega við jöfnunarmarkið þar sem Alessandro Murgia kom Lazio yfir aðeins mínútu síðar og það reyndist sigurmark leiksins.

Voru það því leikmenn Lazio sem fögnuðu sigri á heimavelli sínum, Ólympíuleikvanginum í Róm, en þetta er í fyrsta skiptið frá 2009 sem Lazio landar sigri í ofurbikarnum á Ítalíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×