Bíó og sjónvarp

Aqua-Lene leikur nýja eiginkonu Caspers í Klovn

Atli Ísleifsson skrifar
Reiknað er með að sjöunda þáttaröð Klovn verði sýnd á næsta ári.
Reiknað er með að sjöunda þáttaröð Klovn verði sýnd á næsta ári. Vísir/Anton Brink
Lene Nystrøm, sem gerði garðinn frægan sem söngkona sveitarinnar Aqua, mun fara með hlutverk nýrrar eiginkonu Casper Christensen í næstu þáttaröð um vitleysingana í Klovn.

Nystrøm segir í samtali við TV2 að hún muni þar leika ýkta útgáfu af sjálfri sér.

Klovn fjallar um líf grínistanna Frank Hvam og Casper Christensen og raunir þeirra en þættirnir nutu mikilla vinsælda í Danmörku, Íslandi og víðar. Tökur standa nú yfir á sjöundu þáttaröðinni en auk fyrri þáttaraðanna sex hafa komið út tvær kvikmyndir um ævintýri þeirra Frank og Casper.

Í fyrri þáttum og kvikmyndum hefur Iben Hjejle farið með hlutverk eiginkonu Casper. Þau Hjejle og Christensen voru einnig hjón í raunveruleikanum en skildu árið 2011.

Í nýju þáttaröðinni verða Casper og Iben einnig búin að skilja og hann hefur þá tekið saman við og gifst Lene. Nystrøm hefur látið að sér kveða á sviði leiklistar á síðustu árum.

Lene og félagar hennar í Aqua áttu hvern stórsmellinn á fætur öðrum á tíunda áratugnum, meðal annars Barbie Girl og Doctor Jones.

Reiknað er með að sjöunda þáttaröð Klovn verði sýnd á næsta ári.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×