Skrýtið að leita ekki tilboða frá Pennanum Sigurður Mikael Jónsson skrifar 15. ágúst 2017 06:00 Grunnskóli Seltjarnarness leitaði óformlega tilboða hjá aðeins tveimur af fjórum helstu seljendum ritfanga við opinber innkaup á helstu námsgögnum fyrir grunnskólanemendur í bæjarfélaginu. vísir/anton brink
Penninn Eymundsson var ekki eitt þeirra þriggja fyrirtækja sem stjórnendur Grunnskóla Seltjarnarness leituðu tilboða frá vegna kaupa á helstu námsgögnum fyrir nemendur í 1. til 6. bekk. Aðstoðarskólastjóri segir að hluti námsgagnanna hafi verið keyptur í Costco. Líkt og kom fram í máli skólastjórnenda í Fréttablaðinu í gær var að þeirra sögn leitað tilboða hjá helstu heildsölum og ritfangaverslunum. Að sögn Þorgerðar Önnu Arnardóttur, aðstoðarskólastjóra Grunnskóla Seltjarnarness, voru þetta A4, ABC skólavörur og Rekstrarvörur. Tilboði A4 var tekið en eigandi fyrirtækisins er eiginmaður formanns bæjarráðs og skólanefndar bæjarins, en það var einmitt skólanefndin sem samþykkti samhljóða tillögu skólans um að bjóða yngstu nemendum upp á helstu námsgögn, þó ekki öll, þeim að kostnaðarlausu. Sigrún Edda Jónsdóttir, formaður bæjarráðs og skólanefndar, sagðist í samtali við Fréttablaðið í gær þó enga aðkomu hafa haft að málinu, þó það sé óheppilegt í ljósi stöðu hennar og tengsla. Málið hafi verið á borði skólastjórnenda. „Svo fórum við bara á stúfana sjálf og skoðuðum í Costco þannig að við versluðum meira að segja svolítinn hluta þar. Við keyptum því ekki einu sinni allt hjá A4, þó við höfum keypt megnið þaðan,“ segir Þorgerður Anna. Ekki var leitað til Pennans Eymundsson, eins stærsta fyrirtækisins á þessu sviði og forstjóranum þykir það skrýtið. „Það var ekki haft samband við okkur,“ segir Ingimar Jónsson, forstjóri Pennans Eymundsson, „sem okkur finnst mjög skrýtið.“ Kristbjörn Jónsson, markaðs- og sölustjóri Rekstrarvara, telur sömuleiðis að skólinn hafi farið fremur óhefðbundna leið í tilboðsleit sinni. Eðlilegra hefði verið að fara í örútboð á vegum Ríkiskaupa. Mörg þeirra tuga sveitarfélaga sem að undanförnu hafa ákveðið að kaupa námsgögn fyrir grunnskólanemendur sína hafa farið þá leið. Penninn Eymundsson, Rekstrarvörur, Múlalundur og A4 eru þau fyrirtæki sem eru aðilar að rammasamningi um ritföng og skrifstofuvörur hjá Ríkiskaupum. Aðeins var því óformlega leitað tilboða hjá tveimur af fjórum helstu seljendum á þessu sviði við opinber innkaup.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Námsgögn verða keypt af eiginmanni formanns skólanefndar Seltjarnarnesbær mun kaupa námsgögn fyrir börn í 1. til 6. bekk af A4. Eiginmaður Sigrúnar Eddu Jónsdóttur, formanns skólanefndar og bæjarráðs, er eigandi A4. Hún segist enga aðkomu hafa haft að málinu en hún sé vissulega hagsmunaað 14. ágúst 2017 06:00 Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Fleiri fréttir Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Of snemmt að kenna bikblæðingum um Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Sjá meira
Námsgögn verða keypt af eiginmanni formanns skólanefndar Seltjarnarnesbær mun kaupa námsgögn fyrir börn í 1. til 6. bekk af A4. Eiginmaður Sigrúnar Eddu Jónsdóttur, formanns skólanefndar og bæjarráðs, er eigandi A4. Hún segist enga aðkomu hafa haft að málinu en hún sé vissulega hagsmunaað 14. ágúst 2017 06:00