Innlent

Velti jeppanum með sjö í bílnum

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Bíllinn var af gerðinni Land Cruiser, ekki ósvipaður þessum hér.
Bíllinn var af gerðinni Land Cruiser, ekki ósvipaður þessum hér. Vísir/GVA
Land Cruiser-jeppi með sjö manns innanborðs valt út af veginum við Þórisvatn í Hróarstungu á Héraði á fjórða tímanum. Ríkisútvarpið greindi fyrst frá óhappinu en í samtali við Vísi segir lögreglan á Egilsstöðum að meiðsl á fólki séu ekki talin alvarleg.

Þó hafi hluti hópsins, sem samanstóð af fimm fullorðnum og tveimur börnum, orðið fyrir einhverju hnjaski og því hafi fólkið verið flutt á heilsugæsluna á Egilsstöðum.

Ekki liggur fyrir hver tildrög slyssins voru en töluverð rigning er nú fyrir austan og vegurinn blautur. Ekki er loku fyrir það skotið að ökumaðurinn, sem er útlenskur ferðamaður, sé óvanur þessum aðstæðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×