Froskafár í Garðabæ Stefán Ó. Jónsson skrifar 16. ágúst 2017 19:25 Froskarnir eru agnarsmáir og reyna heimilsmennirnir nú hvað þeir geta til að bjarga þeim. Karen Kjartansdóttir
Karen Kjartansdóttir, íbúi við Melás í Garðabæ, vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið í kvöld þegar börn hennar færðu henni frosk sem þau höfðu fundið í garðinum. Þegar hún grennslaðist betur fyrir komu fjölmargir froskar í ljós - í og við húsið. Þegar Vísir heyrði í Karen nú á áttunda tímanum var mikill hamagangur á heimilinu; húskötturinn Dimma var í óðaönn við að veiða froskana og börnin reyndu hvað þau gátu til að bjarga þeim frá því að lenda í klóm kattarins. Þannig var búið að koma einum froskinum fyrir í baðkarinu - ekki ósvipað og gert var við fiskana forðum í Sódóma Reykjavík. Karen áætlar að þetta hljóti að vera í fyrsta skipti sem froskar finnist í Garðabænum, í það minnsta í Melás þar sem fjölskyldan er til húsa. „Þetta hlýtur að vera fyrsta alíslenska froskakynið,“ segir Karen hlæjandi. Þó svo að hún kunni engar skýringar á þessum nýju nágrönnum útskýrir hún að skammt frá húsi fjölskyldunnar séu tveir gróðurvaxnir garðar. Í öðrum þeirra megi finna tjörn og þó hún vilji ekki slá því föstu að froskarnir kunni að koma þaðan þá þyki henni það þó líklegt. Hún áætlar að um 10 froskar séu nú í og við húsið og eftir að Karen birti mynd af froskunum á Facebook-síðu sinni þyrptust nágrannar þeirra í heimsókn til að líta á dýrin. Færslu hennar má sjá hér að neðan.
Mest lesið Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent Fleiri fréttir Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Papa's Pizza, verkföll flugvallarstarfsmanna og óvæntur forsetaframbjóðandi Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Framboð Viktors Traustasonar er gilt Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka Sjá meira