Fótbolti

Viðar Örn með sigurmark Maccabi í Evrópukeppninni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Viðar Örn Kjartansson í leik með Maccabi.
Viðar Örn Kjartansson í leik með Maccabi. Vísir/EPA
Íslenski framherjinn Viðar Örn Kjartansson var áfram á skotskónum með ísraelska félaginu  Maccabi Tel Aviv í kvöld.

Viðar Örn tryggði þá Maccabi Tel Aviv 1-0 útisigur á austurríska félaginu  Rheindorf Altach í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.

Sigurmark Viðars kom á 67. mínútu leiksins. Maccabi Tel Aviv er því í fínum málum fyrir seinni leikinn sem fer fram á heimavelli ísraelska liðsins.

Viðar Örn Kjartansson hefur nú þegar skorað þrjú mörk fyrir Maccabi í Evrópudeildinni á þessu tímabili en hann hefur einni gefið tvær stoðsendingar.

Eitt markið og ein önnur stoðsendinganna kom einmitt í leikjunum á móti KR í 2. umferð forkeppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×