Bíó og sjónvarp

Staðfestir að prinsarnir leiki stormsveitarmenn

Samúel Karl Ólason skrifar
Vilhjálmur, John Boyega og Harry.
Vilhjálmur, John Boyega og Harry. Vísir/GEttY
Leikarinn John Boyega staðfesti nú í morgun að prinsarnir Vilhjálmur og Harry hefðu komið að tökum Star Wars: The Last Jedi. Hann staðfesti einnig að Tom Hardy myndi bregða fyrir í myndinni.

„Ég er búinn að fá nóg af þessum leyndarmálum,“ sagði Boyega í viðtali við BBC Radio4. „Þeir komu á settið. Þeir voru þarna. Ég er dauðþreyttur á að halda því leyndu. Ég held að því hafi verið lekið hvort sem er. Það voru myndir. Í hvert sinn sem ég er spurður þarf ég að koma mér undan. Ég er þreyttur á því. Þeir voru þarna og Tom Hardy líka.“

Samkvæmt frétt Screendaily fóru prinsarnir í Pinewood stúdíóið í apríl í fyrra. Þá hefur söngvarinn Gary Barlow einnig staðfest að honum muni bregða fyrir í myndinni.

Það vakti þó nokkra athygli þegar Force Awakens kom út að Daniel Craig lék stormsveitarmann í þeirri mynd. Það kom hvergi fram að hann hefði verið í myndinni og einungis var hægt að heyra rödd hans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×