Fótbolti

Kári á bekknum í sigri Aberdeen

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Kári Árnason.
Kári Árnason. vísir/getty
Kári Árnason byrjaði á bekknum fyrir lið sitt Aberdeen í skosku úrvalsdeildinni í dag.

Aberdeen fékk Dundee í heimsókn í þriðju umferð deildarinnar og halda áfram á sigurbraut með 2-1 sigri.

Hinn skoski Stevie May kom Aberdeen yfir á 11. mínútu, en Roarie Deacon jafnaði fyrir Dundee á 53. mínútu leiksins. May skoraði svo sitt annað mark, og sigurmarkið fyrir Aberdeen á 79. mínútu.

Aberdeen hafa ekki tapað leik enn og eru með fullt hús stiga eins og Celtic og St. Johnstone á toppi skosku deildarinnar.

Kári byrjaði fyrsta leik tímabilsins fyrir Aberdeen en var þá skipt útaf á 60. mínútu og hefur hann ekki spilað síðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×