Innlent

Mæla með regnfötum í hægviðri um verslunarmannahelgina

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Þjóðhátíðargestir eru iðulega viðbúnir öllum veðrum.
Þjóðhátíðargestir eru iðulega viðbúnir öllum veðrum. vísir/vilhelm
Veður um verslunarmannahelgina verður þokkalegt víðast hvar, að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Skúrir gætu þó myndast inn til landsins síðdegis í dag og á morgun og því er landsmönnum á faraldsfæti ráðlagt að hafa með sér regnföt.

Árni Sigurðsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir í samtali við Vísi að hægviðri verði um land allt um helgina. Í dag og á morgun verði þó sums staðar hafgola síðdegis og skúrir gætu myndast á sama tíma inn til landsins.

Á mánudaginn segir Árni að snúist gæti til norðanáttar og þá líti út fyrir að kólni sérstaklega á Norðurlandi. Þar gæti farið niður í allt að 5 til 10 gráður í blálok helgar.

Aðspurður hvort einhver staður verði veðursælli en annar um helgina segist Árni ekki vilja gera upp á milli landshluta.

„Nei, ég myndi ekki gera mikið veður út af því.“

Hér að neðan má svo sjá veðurhorfur næstu daga, teknar af vef Veðurstofu Íslands:

„Búist er við þokkalegu ef ekki ágætisveðri um helgina, fremur hægum vindum, en skúrum á víða og dreif og sums staðar síðdegisdembum. Hiti verður á bilinum 10 til 16 stig að deginum, en mun svalara að næturlagi, jafn vel næturfrost á stöku stað. Sumar tölvuspár gera ráð fyrir norðanátt á frídegi verslunarmanna með rigningu á Norður- og Austurlandi, en spáin ætti ekki að fæla neinn frá útivist né útilegum í náttúru landsins, sem skartar sínu fegursta um þessar mundir. Til að spilla ekki gleðinni er þó vissara að hafa hlý og vatnsvarin föt meðferðis þegar haldið er á vit ævintýranna,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings í dag.

Á sunnudag:

Hæg breytileg átt eða hafgola og skýjað með köflum, en síðdegisskúrir í flestum landshlutum, einkum inn til landsins. Hiti 10 til 16 stig að deginum, en svalara að næturlagi. 

Á mánudag (frídagur verslunarmanna):

Fremur hæg norðanátt og víða dálítil væta með köflum, einkum norðanlands, en léttir til um landið vestanvert þegar líður á daginn. Hiti 5 til 14 stig, hlýjast sunnanlands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×