Sport

Hilmar nálægt sínu besta en komst ekki í úrslit

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hilmar Örn er reynslunni ríkari.
Hilmar Örn er reynslunni ríkari. MYND/VIRGINIA T&F/CC
Hilmar Örn Jónsson kastaði lengst 71,12 metra í undanúrslitum í sleggjukasti á HM í frjálsum íþróttum sem fer fram á Lundúnaleikvanginum þessa dagana. Þetta var hans fyrsta stórmót í fullorðinsflokki.

Hilmar kastaði 71,12 metra strax í fyrsta kasti. Það var því miður eina gilda kast hans því seinni tvö voru dæmd ógild.

Hilmar endaði í 14. sæti af 16 keppendum í sínum riðli og komst ekki í úrslit. Kasta þurfti 75,50 metra til að komast í úrslit.

Hilmar hefur lengst kastað 72,38 metra á ferlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×