Jarðskjálftinn í Eyjahafi: Oddný og fjölskylda vöknuðu upp við skjálftann Erna Agnes Sigurgeirsdóttir og Gissur Sigurðsson skrifa 21. júlí 2017 10:12 Minnst tveir eru látnir eftir jarðskjálftann. Oddný segir að þeim hafi brugðið töluvert við skjálftann. Þá séu einnig búnir að vera margir eftirskjálftir. Vísir/AFP „
Það nötrar enn mikið. Hér eru búnir að vera óteljandi eftirskjálftar og margir stórir,“ segir Oddný Arnarsdóttir, sem stödd er á grísku eyjunni Kos ásamt fjölskyldu sinni. Eyjan kom illa undan jarðskjálfta sem átti upptök sín tólf kílómetrum norðaustur af eyjunni. Minnst tveir eru taldir látnir. Jarðskjálftinn reið yfir klukkan hálf ellefu í gærkvöldi eða klukkan tvö um nótt að staðartíma og var 6,7 að stærð. Um tíu Íslendingar eru á svæðinu. Oddný og fjölskylda hennar vöknuðu upp við skjálftann. „Þetta var rosalega stór skjálfti og auðvitað bregður manni töluvert við að vakna við svona. Hann stóð lengi yfir og við drifum okkur út og stóðum bara í dyrunum eins og manni var einhvern tímann kennt að gera í jarðskjálfta. Svo voru allir kallaðir út úr öllum íbúðum á hótelinu og öllum herbergjum og allir settir hér út á götu á svona öruggt svæði, “ segir Oddný í samtali við fréttastofu. Aðspurð hvort það hafi hvarflað að þeim að þetta tengdist hryðjuverkum svarar Inga því neitandi og segir að það hafi verið ljóst að um jarðskjálfta var að ræða. Nokkur ummerki sjást á hótelinu eftir skjálftann. Sjá má sprungur í herbergjunum, þá hafi gangstéttir og hellur brotnað í sundlaugargarðinum. Sundlaugin sjálf laskaðist einnig. „Það er einhver eyðilegging hérna og svo er náttúrulega mikil eyðilegging hérna niðri í bænum,“ segir Oddný sem segir að fólk hafi hafst við út á götum á meðan að verið var að skoða málin. Þar hafi fólk getað lagt sig á sólbekkjum og þeim var séð fyrir veitingum. Oddný segir að verið sé að fara yfir stöðuna og þau séu hugsi yfir því hvort þau færi sig um set í fríinu. Allir séu enn mjög hvekktir.
Tengdar fréttir Tveir látnir eftir jarðskjálfta í Eyjahafi Skjálftinn, sem var 6,7 að stærð, varð um 12 kílómetrum norðaustur af Kos, nálægt ströndum Tyrklands. 21. júlí 2017 06:48 Mest lesið Fengu ekkert merki frá þyrlunni sem hrapaði með forsetann um borð Erlent Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents Innlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Netanjahú hafnar handtökuskipuninni Erlent Fyrsti stríðsþristurinn lentur Innlent „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Innlent Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Innlent 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Innlent Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt Innlent Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent Fleiri fréttir Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Þolinmæði saminganefnda á þrotum Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Fyrsti stríðsþristurinn lentur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Sungið og sungið á Sauðárkróki „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Ósk um handtökuheimild og deilur um Erfðagreiningu Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Sjá meira
Tveir látnir eftir jarðskjálfta í Eyjahafi Skjálftinn, sem var 6,7 að stærð, varð um 12 kílómetrum norðaustur af Kos, nálægt ströndum Tyrklands. 21. júlí 2017 06:48