Innlent

Slasaðist við að leggja ljósleiðara á Suðurlandi

Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar
Maðurinn var sóttur á svæðið með þyrlu.
Maðurinn var sóttur á svæðið með þyrlu. Vísir/Ernir
Maður er talinn hafa lærbrotnað þegar hann var við vinnu við að leggja ljósleiðara nú í kvöld rétt hjá Hrólfsstaðahelli og Leirubakka. Talið er að spotti hafi slitnað með þeim afleiðingum að kefli féll á manninn.

Þorgrímur Óli Sigurðarson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Suðurlandi , staðfesti þetta í samtali við Vísi. Maðurinn var fluttur með þyrlu á Landspítalann til aðhlynningar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×