Fótbolti

Katrín: Ísland er ekki að dragast aftur úr

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Katrín Jónsdóttir hefur fylgst vel með stelpunum okkar í Hollandi.
Katrín Jónsdóttir hefur fylgst vel með stelpunum okkar í Hollandi. Vísir
Katrín Jónsdóttir, fyrrum landsliðsfyrirliði Íslands og leikmaður liðsins í tæpa tvo áratugi, segir eðilegt að svekkelsið sé mikið hjá leikmönnum íslenska liðsins eftir að það féll úr leik á EM í Hollandi.

Katrín var í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun en hún er stödd í Hollandi þar sem hún hefur verið að fylgjast með sínum gömlu landsliðsfélögum.

„Maður gat sett sig í þeirra spor,“ sagði hún en Ísland hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum á mótinu og féll úr leik er Frakkland og Austurríki gerðu jafntefli á laugardagskvöldið.

„Leikmenn voru búnir að setja sér markmið fyrir löngu og vinna lengi að því að ná þeim. Það er gríðarlegt svekkelsi þegar maður nær þeim ekki.“

Katrín hrósaði íslensku vörninni sérstaklega fyrir frammistöðuna gegn Frakklandi en Katrín var um langt árabil leiðtogi varnarinnar í íslenska landsliðinu.

„Varnarleikurinn gegn Frakklandi var einn sá besti sem Ísland hefur spilað,“ sagði Katrín sem á 133 landsleiki að baki. Hún hætti að spila árið 2013.

Það hefur verið talsverð umræða um íslenska liðið eftir að niðurstaðan var ljós en Katrín hefur ekki áhyggjur af stöðu mála.

„Ísland er ekki að dragast aftur úr. Liðum er almennt að fara fram og það er meiri breidd en áður.“

„Það má ekki gleyma því að það var ótrúleg meiðslasaga hjá íslenska liðinu og það getur skipt meira máli fyrir minni þjóðir en aðrar.“

Hún hrósaði þó mjög ungum og reynslulitlum leikmönnum sem hafa komið inn í liðið. „Þetta var ekki hægt fyrir 5-10 árum síðan, að fá leikmenn svo snöggt inn í liðið. Breiddin er því að aukast hjá okkur og ef maður lítur á heildina hefur þróunin hjá liðinu verið mjög góð.“

Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×