Sport

Nítján Rússar mega keppa á HM í frjálsum í London en ekki fyrir rússneska fánann

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Julia Stepanova vonast eftir því að fá að vera með á HM í London og keppa við Anítu okkar Hinriksdóttur.
Julia Stepanova vonast eftir því að fá að vera með á HM í London og keppa við Anítu okkar Hinriksdóttur. Vísir/Getty
Rússar eru enn í banni hjá Alþjóðafrjálsíþróttasambandinu, IAAF,  en það verða þó Rússar meðal keppanda á Heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum í London í næsta mánuði.

Nítján Rússar hafa fengi leyfi til að keppa á HM en þeir mega hinsvegar ekki keppa undir merkjum Rússlands. Rússarnir þurfa að keppa undir hlutlausum fána og mega ekki klæðast fótum merktum Rússlandi.

Fari svo að einver þeirra vinni HM-gull á mótinu verður rússneski fáninn þannig ekki spilaður í verðlaunaafhendingunni. Stjórnvöld í Rússlandi ætla samt að dekka allan kostnað af þátttöku íþróttafólksins á HM.

Það eru einhverjir úr þessum hópi sem eru líklegir til að lenda í svona stöðu. Maria Lasitskene er eina konan sem hefur farið yfir tvo metra í hástökki á þessu ári og Sergej Sjubenkov fær tækifæri til að verja HM-titil sinn í 110 metra grindarhlaupi.

Alls hafa 38 Rússar fengið grænt ljóst hjá Alþjóðafrjálsíþróttasambandinu en stór hluti þeirra hefur ekki náð lágmörkum inn á heimsmeistaramótið.

106 rússneskir frjálsíþróttamenn hafa hinsvegar fengið rautt spjald og eru því útilokaðir frá keppni á HM í London sem stendur yfir frá 4. til 11. ágúst næstkomandi.

Rússar eru að reyna að berjast fyrir því að Julia Stepanova fái að keppa við Anítu Hinriksdóttur í 800 metra hlaupi kvenna en hún lak upplýsingum til þýsku sjónvarpsstöðvarinnar ARD um skipulagða lyfjanotkun rússneskra íþróttamanna.

Rússar hafa verið í banni hjá IAAF frá því í nóvember 2015. Langstökkvarinn Darja Klisjina var eini Rússinn sem fékk að taka þátt í frjálsíþróttakeppni Ólympíuleikanna í Ríó.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×