Ríkið tók ekki ódýrasta tilboðinu Sæunn Gísladóttir skrifar 11. júlí 2017 07:00 Ríkiskaupum og RARIK var gert að greiða Annata skaðabætur og 700 þúsund krónur í málskostnað. vísir/gva
Kærunefnd útboðsmála úrskurðaði þann 4. júlí síðastliðinn að Ríkiskaup og RARIK ohf. væru skaðabótaskyld gagnvart Annata ehf. í máli er varðaði samningskaupaferli um orkureikningakerfi. Í nóvember 2015 hafði tveimur þátttakendum verið boðið til samningskaupaviðræðna við Ríkiskaup og RARIK ohf., annars vegar Annata og hins vegar Advania. Hinn 11. nóvember 2016 var forsvarsmönnum Annata tilkynnt að gengið hefði verið til samninga við hitt fyrirtækið, Advania ehf. Annata kærði í byrjun desember síðastliðnum ferlið og gerði þá kröfu að ákvörðun um val á tilboði Advania yrði felld úr gildi. Tilgangur viðræðnanna var að leita eftir samningsaðila sem gæti útvegað RARIK ohf. orkureikningalausn og veitt þjónustu á sem hagstæðastan máta með tilliti til verðs og gæða. Annata átti lægsta verðtilboðið. Samkvæmt úrskurðinum höfðu Ríkiskaup og RARIK ekki sýnt fram á að þau hafi tekið afstöðu til tilboða í samræmi við skilmála samningskaupanna, valið hagkvæmasta tilboð og þar með uppfyllt skyldu sína. Því var þeim gert að greiða Annata skaðabætur og 700 þúsund krónur í málskostnað. Hins vegar var kröfu kæranda hafnað um að fella úr gildi ákvörðun um val á tilboði Advania. Hér má sjá úrskurðinn.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Borgar 760 þúsund fyrir flísalögn sem átti að kosta þrjár milljónir Neytendur Ánægðari börn, foreldrar og starfsfólk og öflugt fagstarf Samstarf Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent „Rétturinn til viðgerðar“ væntanlegur til landsins Neytendur Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Viðskipti innlent Hefur óeðlilega þörf fyrir að strauja allt frá skyrtum í barnasamfellur Atvinnulíf Pepsíunnandi til margra ára kveður drykkinn eftir breytinguna Neytendur Brimborg lækkar verð á Polestar Samstarf 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Viðskipti innlent Írskur matsölustaður hafði betur í vörumerkjadeilum við McDonalds Viðskipti erlent Fleiri fréttir 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Varar við þenslu á byggingamarkaði Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland Bein útsending: Ásgeir og Arnór sitja fyrir svörum Þrálát verðbólga mun skapa áskoranir fyrir fjármálakerfið Ráðinn nýr framkvæmdastjóri hjá Landsneti Herða eftirlit með kínverskum verslunarrisa í leiftursókn Félag í eigu Quang Lé gjaldþrota Öfugþróun að minni verðmæti komi af hverjum ferðamanni „Viðskiptakonan“ sem komst á Bessastaði í annarri tilraun Samruninn hefði haft umtalsverð skaðleg áhrif Svarta sviðsmyndin blasir við ferðaþjónustunni í ár Icelandair hefur flug til Halifax á nýjan leik Tæplega sextíu sagt upp hjá Landvinnslu Þorbjarnar í Grindavík 441 sagt upp í sex hópuppsögnum Alls ekki auðveld ákvörðun að selja Bjórböðin Telja SKE hafa farið offari og hætta við kaupin Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Sjá meira