Sport

Aðeins tvö íþróttafélög í heiminum verðmætari en Man Utd

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
United-mennirnir Jesse Lingard og Marcus Rashford fagna sigri í Evrópudeildinni í vor.
United-mennirnir Jesse Lingard og Marcus Rashford fagna sigri í Evrópudeildinni í vor. Vísir/Getty
Dallas Cowboys, New York Yankees og Manchester United eru verðmætustu íþróttafélög heims í dag samkvæmt samantekt bandaríska viðskiptablaðsins Forbes.

Manchester United var á toppi listans 2011 og 2012 en hafði hrapað niður listann á síðustu árum. United komst hinsvegar núna upp fyrir bæði spænsku félögin Barcelona og Real Madrid og getur því aftur kallað sig verðmætasta fótboltafélag heims. BBC segir frá.

NFL-liðið Dallas Cowboys frá Bandaríkjunum er hinsvegar verðmætast íþróttafélag heimsins en Forbes metur að það sé 4,3 milljarða dollara virði í dag. 4,3 milljarðar dollara eru 456 milljarðar íslenskra króna.

Í öðru sæti er bandaríska hafnarboltaliðið New York Yankees sem er metið á 3,7 milljarða dollara eða 392 milljarða íslenskra króna.

Manchester United er rétt á eftir Yankees en virði United er 3,39 milljarðar dollara samkvæmt samantekt Forbes.

Hér má sjá topp tíu listann:

1. Dallas Cowboys 4,2 milljarðar dollara - amerískur fótbolti

2. New York Yankees 3,7 milljarðar dollara - hafnarbolti

3. Manchester United 3,69 milljarðar dollara - knattspyrna

4. Barcelona 3,64 milljarðar dollara - knattspyrna

5. Real Madrid 3,58 milljarðar dollara - knattspyrna

6. New England Patriots 3,4 milljarðar dollara - amerískur fótbolti

7. New York Knicks 3.3 milljarðar dollara - körfubolti

8. New York Giants 3,1 milljarður dollara - amerískur fótbolti

9. San Francisco 49ers 3 milljarðar dollara - amerískur fótbolti

10. Los Angeles Lakers 3 milljarðar dollara - körfubolti




Fleiri fréttir

Sjá meira


×