Tíska og hönnun

Laumast í fataskáp foreldranna

Sólveig Gísladóttir skrifar
Ragnheiður María Benediktsdóttir. Svartar víðar buxur ásamt belti eru í uppáhaldi hjá henni.
Ragnheiður María Benediktsdóttir. Svartar víðar buxur ásamt belti eru í uppáhaldi hjá henni. Vísir/Ernir
Ragnheiður María Benediktsdóttir, önnur tveggja hljómsveitarmeðlima RuGl, hefur gaman af því að spá í tísku liðinna ára. Síðustu tónleikar RuGl í bili verða í gróðurhúsi Norræna hússins á sunnudag.

Með Ragnheiði í RuGl er vinkona hennar Guðlaug Fríða Helgadóttir Folkmann, en báðar eru þær sextán ára gamlar. Hljómsveitin keppti í Músíktilraunum þar sem þær komust í úrslit og öðluðust talsverða athygli. Árið 2016 hituðu þær upp fyrir Risaeðluna í Gamla bíói og komu fram á Airwaves ásamt því að vera tilnefndar til Íslensku tónlistarverðlaunanna

Ragnheiður segist spá töluvert í tísku. „Já, ég kemst nú ekki hjá því! Mér finnst líka mjög áhugavert og skemmtilegt að pæla í því sem hefur verið í tísku í gegnum árin, skoða mismunandi tímabil, bæði í fötum og tónlist,“ segir hún og lýsir eigin stíl sem þægilegum og stílhreinum.

Hún segist reyndar ekki eyða miklu í föt. „Ég er dugleg að nýta flíkur sem mér áskotnast en ef hin fullkomna flík er dýr þá myndi ég samt alveg kaupa hana,“ segir Ragnheiður sem kaupir flest sín föt notuð, til dæmis í Rauða krossinum og Spúútnkik. „Við vinkona mín erum líka mikið í því að skiptast á fötum og svo á ég það til að laumast í skápinn hjá foreldrum mínum,“ segir hún glettin.

Er einhver flík í uppáhaldi?

„Svartar, víðar buxur ásamt belti. Þær passa vel við öll tækifæri.“

Skartgripi notar Ragnheiður sjaldan en helstu fylgihlutirnir eru belti, flottar töskur og stórir treflar á köldum dögum.

Hvað með tískufyrirmyndir?

„Ég fylgist mikið með fólki á samfélagsmiðlunum sem hefur áhrif á minn stíl en annars er Audrey Hepburn alltaf flottust.“

Á sunnudaginn heldur RuGl sína síðustu tónleika í bili. „Fríða er að flytja til Danmerkur eftir örfáar vikur og því fer að líða að okkar síðustu tónleikum í bili. Þeir verða haldnir á sunnudaginn klukkan 15 og eru hluti af Pikknikk tónleikaröð Norræna hússins. Tónleikarnir eru í gróðurhúsi Norræna hússins og aðgangur er ókeypis.“

Þær vinkonur hafa einnig verið að taka upp lögin sín undanfarið hjá Orra Jónssyni, Orra analog, í Gufunesradíói. „Við stefnum á útgáfu EP-plötu og setjum bráðum í gang Karolina Fund söfnun - endilega fylgist með því á Facebook-síðunni okkar,“ segir hún glaðlega.

Hér fyrir neðan má sjá þegar RuGl kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 í tilefni af Reykjavík Folk Festival í vor.


Tengdar fréttir

Þetta var fjarlægur draumur

Þær Ragnheiður María Benediktsdóttir og Guðlaug Fríða Helgadóttir Folkmann stofnuðu hljómsveitina Rugl snemma á þessu ári. Þær koma til með að hita upp fyrir PJ Harvey á Iceland Airwaves.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×