Innlent

Ölvun í borginni í nótt: Kona grunuð um ölvun við stjórn hests

Kjartan Kjartansson skrifar
Ölvun kom við sögu í mörgum þeim málum sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að sinna í nótt.
Ölvun kom við sögu í mörgum þeim málum sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að sinna í nótt. Vísir/Eyþór
Töluvert af málum þar sem ölvun kom við sögu komu inn á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Þar á meðal var kona sem datt af hestbaki í Mosfellsbæ. Hún er grunuð um „ölvun við stjórn hests“ samkvæmt dagbók lögreglunnar.

Tilkynnt var um óhappið á miðnætti og var konan flutt með sjúkrabíl á slysadeild. Meiðsl hennar eru þó ekki talin alvarleg.

Tæpum tveimur tímum áður hafði ölvaður karlmaður verið handtekinn á heimili sínu í austurborginni. Hann er grunaður um heimilisofbeldi og var vistaður í fangageymslu í nótt.

Veitti lögreglumönnum harða mótspyrnu í sólahringsverslun

Rétt eftir miðnætti voru lögreglumenn kvaddir til að aðstoða við að vísa tveimur ölvuðum mönnum úr sólahringsverslun í austurborginni. Þeir hafi verið að angra og ógna starfsfólki og viðskiptavinum. Lögregla hafði tal af mönnunum og gaf þeim fyrimæli um að yfirgefa staðinn.

Annar mannanna hlýddi engu og veitt harða mótspyrnu við handtöku, að sögn lögreglu. Hann var að lokum yfirbugaður og fluttur á lögreglustöð.

Braut gegn konu á skemmtistað og réðist á dyraverði

Eftir klukkan tvö í nótt var maður handtekinn í annarlegu ástandi á skemmtistað í miðborginni. Sá er grunaður um kynferðisbrot gagnvart konu. Hann er sagður hafa ráðist á dyraverði sem hugðust vísa honum út í framhaldinu. Maðurinn fékk að gista fangageymslu en málið verður rannsakað frekar.

Á fjórða tímanum var tilkynnt um ölvaðan mann sem var með mikil læti og ónæði í íbúðargötu í miðborginni. Lögregla segir hann hafa verið í slæmu ástandi vegna áfengis- og fíkniefnaneyslu. Hann var handtekinn fyrir óspektir á almannafæri og gisti fangageymslu.

Að lokum voru fjórir ökumenn handteknir, grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Þeim var öllum sleppt að lokinni sýnatöku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×