Innlent

Sex heimilisofbeldismál komu til kasta lögreglu

Kjartan Kjartansson skrifar
Áverkar fórnarlamba heimilisofbeldisins eru sagðir misalvarlegir.
Áverkar fórnarlamba heimilisofbeldisins eru sagðir misalvarlegir. Vísir/Getty
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynningu um sex heimilisofbeldismál í gærkvöldi og nótt. Þrír gerendur voru handteknir en hinir þrír voru farnir af vettvangi þegar lögreglu bar að garði.

Í dagbók lögreglunnar kemur fram að haft verði upp á gerendunum þremur sem létu sig hverfa síðar. Áverkar fórnarlambanna eru misalvarlegir.

Þá var maður handtekinn í Breiðholti kl. 4:30 í nótt. Hann er grunaður um að hafa hótað og ógnað fólki með hnífi. Hann gisti fangageymslu lögreglunnar það sem eftir leið nætur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×