Innlent

Sýnir mikilvægi Keflavíkurflugvallar fyrir öryggi

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Bilun kom upp í hreyfli farþegaþotu Norwegian í morgun og var vélinni lent í Keflavík. Myndin er úr safni.
Bilun kom upp í hreyfli farþegaþotu Norwegian í morgun og var vélinni lent í Keflavík. Myndin er úr safni.
Atvikum eins og því þegar norsk flugvél lenti á Keflavíkurflugvelli á einum hreyfli í morgun hefur fjölgað með aukinni flugumferð. Upplýsingafulltrúi Isavia segir atvikið sýna mikilvægi flugvallarins sem öryggisventils á milli Evrópu og Bandaríkjanna.

Boeing Dreamliner-farþegaþotu norska flugfélagsins Norwegian var lent á Keflavíkurflugvelli á tíunda tímanum í morgun eftir að flugstjóri hennar tilkynnti um bilun í hreyfli.

Vélin var á leið frá Los Angeles á vesturströnd Bandaríkjanna til Arlanda-flugvallar í Stokkhólmi. Um borð voru um það bil þrjú hundruð farþegar auk áhafnar.

Sjá einnig:Norskri flugvél með bilaðan hreyfil lent í Keflavík

Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Isavia, segir að farþegunum hafi verið boðin áfallahjálp en samstarfsaðili Norwegian á Íslandi sjái um að koma þeim áfram.

Lítil hætta á ferðum

Öllum viðbragðsaðilum á Suðurnesjum var gert viðvart um að vélin væri væntanleg til lendingar og var óvissustigi, lægsta hættustiginu, lýst yfir.

Fyrst voru reyndar send út skilaboð um hæsta mögulega viðbúnaðarstig fyrir mistök en þau voru fljótt afturkölluð.

Þrátt fyrir viðbúnaðinn segir Guðni að lítil hætta sé talin hafa verið á ferðum. Flughæfni véla af þessu tagi sé mikil, jafnvel þó að þær fljúgi aðeins á einum hreyfli.

Keflavíkurflugvöllur er mikilvægur flugöryggi á norðanverðu Atlantshafi.Vísir/Anton Brink.
Hafa lent í Keflavík vegna flugatvika og veikinda

Atvikum af þessu tagi hefur fjölgað eftir því sem umferð um íslenska flugstjórnarsvæðið hefur aukist undanfarin ár.

„Þarna er einmitt um að ræða flugvél sem er ekki á leiðinni til Keflavíkur heldur á milli heimsálfa. Þetta sýnir auðvitað mikilvægi Keflavíkurflugvallar sem öryggisventils þarna á milli Evrópu og Norður-Ameríku,“ segir Guðni.

Þó að það hafi ekki gerst oft þá hafi það komið fyrir að flugvélar sem voru á leið yfir Atlantshafið hafi lent í Keflavík, annað hvort vegna einhvers konar flugatvika eða veikinda farþega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×