Innlent

Ringulreið á safnstæðum

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Kristján Daníelsson, framkvæmdastjóri Kynnisferða.
Kristján Daníelsson, framkvæmdastjóri Kynnisferða.
Nokkur ringulreið var við safnstæðin í borginni í dag þar sem bílstjórar eru að venjast nýju banni við akstri hópferðabíla sem tók gildi í gær. Níu rútur biðu í röð við stæði sem ætlað er einu til þremur ökutækjum en minni bílar fluttu töskur farþega að stöðvunum.

Auk banns­ins hef­ur borg­in sett til­mæli um akst­urs­stefnu hóp­bif­reiða um göt­ur í útjaðri bannsvæðis­ins. Til dæmis er óheimilt að aka upp Njarðargötuna en svokölluðum hoppferðabílar Kynnisferða munu hundsa bannið þar til í ágúst þar sem tíma tekur að aðlaga leiðsögukerfið að nýrri akstursleið.

Framkvæmdastjóri Kynnisferða lagði leið sína í bæinn í morgun og fylgdist með gangi mála.

„Safnstæðin eru fyrir eina til tvær, kannski þrjár rútur af minni gerðinni. Ég fór og fylgdist með í morgun og sá níu hópferðabíla bíða í röð eftir að komast að safnstæðinu og inn á safnstæðið," segir Kristján Daníelsson, framkvæmdastjóri Kynnisferða.

„Það var smá ringulreið í fólkinu. Vissi ekki hvert það ætti að fara. Það voru margir bílar og þeir litu margir eins út. En þetta leystist allt á endanum," segir hann. 

Miðað er við að rútubílstjórar tæmi og fylli rúturnar á fimm á mínútum. Kristján segir það ekki ganga upp.

„Í einstaka tilvikum kannski. En þegar þú ert að afferma bíl með 30 til 40 eða 50 farþegum eða að ferma bíl með 30, 40 eða 50 farþegum, þá gengur það ekki," segir hann.

Bílstjórar fóru nokkrum sinum inn á bannsvæðið í dag en Kristján segir það meðal annars hafa verið gert til að sækja farþega í neyð. Einnig séu einhverjir bílstjórar á móti banninu og hafa ekki þar með hlýtt því en á því verður tekið. Þá var nokkuð um sendiferðabíla á bannsvæðinu í dag sem fluttu töskur farþega að rútustæðunum.

Rútubannið verður endurskoðað hjá borginni í vetur og Kristján telur að ýmislegt mætti þá gera betur.

„Ef það á að gera þessi safnstæði að veruleika til framtíðar þarf að gera þau enn betur. Það þarf að merkja þau betur. Við erum ennþá að sjá einkabíla leggja í stæðin. Það þarf að koma upp skýlum svo fólk geti átt einhvern stað á meðan það bíður. Við erum ekki að tala um nokkra einstaklinga. Við erum að tala um jafnvel þúsund manns á dag," segir Kristján.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×