Fótbolti

Á bak við tjöldin með liðsstjórunum og gleðigjöfunum Laufeyju og Margréti

Kolbeinn Tumi Daðason í Ermelo skrifar
Laufey Ólafsdóttir og Margrét Ákadóttir eru sannkallaðir gleðigjafar og sinna hlutverki sínu sem liðsstjórar vel.
Laufey Ólafsdóttir og Margrét Ákadóttir eru sannkallaðir gleðigjafar og sinna hlutverki sínu sem liðsstjórar vel.
„Skipulag er númer eitt, tvö og þrjú hjá okkur og svo vinnum við svo ótrúlega vel saman,“ segja liðstjórarnir Margrét Ákadóttir og Laufey Ólafsdóttir. 

Knattspyrnukempurnar og fyrrverandi landsliðskonurnar sjá til þess að halda utan um allan fatabúnað kvennalandsliðsins og starfsliðs á meðan á Evrópumótinu í Hollandi stendur. Það er ekkert smáverk. Hópurinn telur 23 leikmenn og átján manna starfslið. Nóg að gera hjá þeim Margréti og Laufeyju.

Margrét er reynd í faginu, mætt á sitt þriðja stórmót en Laufeyj er lærlingurinn, eins og hún segir sjálf, enda ekki svo langt síðan hún hætti sjálf að spila. Þær fá stundum að vera með á æfingum, sérstaklega þegar hluti leikmanna hvílir daginn eftir leik og Laufey segir að enn sé að finna töfra í tánum. Blaðamaður hefur enga ástæðu til að efast um það enda var Laufey frábær knattspyrnukona.

Laufey og Margrét vildu ekki gefa neitt uppi um það hvort einhver leikmaður væri erfiðari við að eiga en annar þegar kæmi að því að klæða þær upp. Það væri lítið vesen enda þær búnar að ala stelpurnar vel upp.

„Þess vegna er maður kannski að fara á sitt þriðja stórmót því manni þykir svo vænt um þessar stelpur og það er gaman að vera með þeim.“

Þær stöllur eru bjartsýnar á gott gengi okkar kvenna.

„Við vorum ekki að koma með allt þetta dót til þess að fara heim. Það er á hreinu!“

Viðtalið við þær Laufeyju og Margréti má sjá í heild hér að neðan.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×