Stuðningsmenn Trump líklegri til að kjósa en andstæðingar hans Kjartan Kjartansson skrifar 19. júlí 2017 15:54 Repúblikanar ráða lögum og lofum á Bandaríkjaþingi eins og er. Þingkosningar fara hins vegar fram í nóvember 2018. Vísir/EPA
Víðtæk andspyrna gegn Donald Trump forseta virðist ekki hafa hleypt kjósendum Demókrataflokksins kapp í kinn fyrir þingkosningarnar sem fara fram í Bandaríkjunum á næsta ári. Þrátt fyrir að meirihluti vilji að demókratar nái meirihluta í þinginu eru stuðningsmenn Trump ákveðanari í að kjósa en þeir sem eru honum andsnúnir. Ný könnun Washington Post og ABC News bendir til þes að 52% skráðra kjósenda vilji að demókratar verði í meirihluta í Bandaríkjaþingi eftir þingkosningarnar sem fara fram á næsta ári á móti 38% sem styðja repúblikana. Jafnvel þó að stuðningur við Trump mælist nú aðeins 36% og að hávær andspyrnuhreyfing gegn forsetanum hafi sprottið upp eftir kjör hans þá gætur merkjanlega minni áhuga á kosningunum hjá demókrötum en repúblikönum. Þannig segjast 65% þeirra sem telja sig repúblikana eða hallast að flokknum ætla að kjósa í kosningunum en aðeins 57% demókrata. Að sama skapi ætla 72% þeirra sem eru mjög sáttir við embættisfærslur Trump að kjósa en 61% þeirra sem eru mjög ósáttir við hann.Kosið um meirihluta þingsætaNiðurstöðurnar benda þó til þess að demókratar ná að smala stuðningsmönnum sínum á kjörstaði þá geti þeir unnið verulega á repúblikana í kosningunum. Kosningarnar fara fram 6. nóvember á næsta ári. Þá verður kosið til allra 435 sæta í fulltrúadeild Bandaríkjaþings og 33 af hundrað sætum í öldungadeildinni. Repúblikanar eru með meirihluta í báðum deildum.
Bandaríkin Mest lesið Brosandi þótt aftur sé ekið á flugvél Verzlinga Innlent Börnin eru fundin Innlent Meðhöndlarinn farinn að nudda á Kvíabryggju Innlent Höllurnar taka forystuna en aðeins hársbreidd á milli þeirra og Katrínar Innlent „Þetta er bara eins og að finna gull“ Innlent Taldir hafa sviðsett árekstur í Hafnarfirði Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir árásirnar í Rafah „hræðileg mistök“ Erlent Andrea Kristín enn dæmd í fangelsi Innlent Dúxaði í Verzló með tíu í einkunn og ári á undan í skóla Innlent Fleiri fréttir Segir árásirnar í Rafah „hræðileg mistök“ Segja Frakka ætla að senda hermenn til Úkraínu Sautján ára „hermaður Hitlers” dæmdur í sjö ára fangelsi Töldu að enginn ætti að deyja í árásunum AfD náði ekki að sigra eftir hrinu hneykslismála Óttast að um 2.000 hafi látist í aurskriðum á föstudag Alríkislögreglan aðstoðar við leit að munum úr British Museum Átján látnir eftir mikið óveður í miðríkjum Bandaríkjanna Hart sótt að Sunak vegna hugmynda um herþjónustu fyrir 18 ára Hryllingur í Rafah eftir hefndaraðgerðir Átta á sjúkrahúsi eftir mikla ókyrrð 700 talin af vegna aurskriðu í Papúa Nýju-Gíneu Hamas skaut eldflaugum í átt að Tel Aviv Flytja hjálpargögn til Gasa í gegnum Kerem Shalom Tólf látin og tugir særð eftir árás á byggingavöruverslun Fjölda saknað eftir loftárás á byggingavöruverslun Halda áfram árásum á Rafah Hafnaði beiðni Baldwin um frávísun „Við munum vinna þennan slag“ Vilja banna snjallsíma fyrir yngri en 16 ára Segja Pútín vilja vopnahlé sem miðist við núverandi víglínur Sá sem át ekkert nema McDonalds í mánuð er fallinn frá Ísrael eigi að láta af öllum hernaðaraðgerðum í Rafah „Þetta setti af stað dómínó-áhrif út um allan heim“ Óttast um afdrif ríflega hundrað eftir aurskriðu Allsherjarsigur gegn Hamas ólíklegur Segir yfirlýsingar um að FBI hafi mátt skjóta Trump stórhættulegar Segir samstöðu lykilinn að jarðgangagerð Færeyinga Fjórir látnir eftir að bygging hrundi á Majorku Munu þurfa að afplána í Kósovó Sjá meira